Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólabyrjun

11.08.2010
Skólabyrjun

Undirbúningur skólastarfsins er nú hafinn af fullum krafti.  Skrifstofa skólans er opin frá kl. 08:30 – 16:00 fram að skólasetningu. Föstudaginn 13.ágúst lokar skrifstofan kl. 14:00.

Foreldrafundir með nemendum verða haldnir 24. ágúst. Umsjónarkennarar munu hafa samband við heimilin í vikunni 16. – 20. ágúst n.k. varðandi tímasetningar á þeim. Innkaupalistar fyrir nemendur í 1. – 7 .bekkja eru nú komnir á heimasíðu skólans með upplýsingum um þau gögn sem eiga að vera í pennaveskinu í vetur.  Líkt og undanfarin ár sér skólinn um magninnkaup á öðrum gögnum sem foreldrar greiða innkaupsverð fyrir í haust. Innkaupalistar fyrir nemendur í unglingadeild verða birtir á heimasíðu skólans þriðjudaginn 17. ágúst.

Kennsla hefst skv. stundaskrá miðvikudaginn 25. ágúst. Tómstundaheimilið Sælukot opnar 25. ágúst.

Nýjum nemendum sem hefja nám við skólann haustið 2010 verður boðið á kynningarfund ásamt foreldrum sínum 18. ágúst og verður tölvupóstur með nánari upplýsingum sendur síðar í vikunni.

Við hvetjum ykkur til að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.

Hlökkum til samstarfsins í vetur.

Til baka
English
Hafðu samband