Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lionshlaup 5. bekkjar

17.05.2011
Lionshlaup 5. bekkjar

Lionshlaup var haldið 11. maí 2011. Nemendur 5. bekkja tóku þátt og var þetta boðhlaup á milli umsjónarhópanna þriggja.

Það voru félagar úr Lionsklúbbnum Eik í Garðabæ sem stóðu fyrir hlaupinu eins og undanfarin ár og spjölluðu þeir aðeins við nemendur áður en hlaupið hófst. Kjartan Atli Kjartansson þjálfari og leikmaður meistaradeildar körfubolta í Stjörnunni kom einnig og ræddi við nemendur um heilbrigt líferni og tilefni hlaupsins.

Nemendur stóðu sig mjög vel í hlaupinu, bæði keppendur og stuðningsmenn sem hvöttu liðin ákaft áfram. Allir nemendur 5. bekkjar fengu viðurkenningarskjöl í lokin og bekkurinn sem bar sigur úr býtum hlaut verðlaunabikarinn og einnig fengu allir nemendur hans verðlaunapeninga.

Myndir af Lionshlaupinu

Til baka
English
Hafðu samband