Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Spilakvöld hjá 1.-2.bekk

26.05.2011
Spilakvöld hjá 1.-2.bekkMiðvikudaginn 25.maí var spilakvöld hjá 1.og 2. bekk. Bekkjarfulltrúar skipulögðu kvöldið og komu foreldrar með eitthvað matarkyns sem sett var á sameiginlegt borð. Þegar allir höfðu fengið næringu kom starfsfólk frá fyrirtækinu Spilavinir með fullt af spilum sem það kenndi svo foreldrum og börnum að spila. Eins og sjá má á  myndasíðunni þá var mikið fjör og einbeiting skein út úr hverju andliti. Fyrr á þessu skólaári voru bekkjarfulltrúar með diskó fyrir nemendur í 1. og 2. bekk og foreldra þeirra og eru komnar myndir af þeim atburði á myndasíðu 1. og 2. bekkjar.
Til baka
English
Hafðu samband