Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kynningarfundir fyrir nýja nemendur

15.08.2011

Miðvikudaginn 17. ágúst 2011 er forráðamönnum nýrra nemenda sem hefja nám í Sjálandsskóla boðið á kynningarfund í skólanum.  Fyrir forráðamenn nemenda í 1. bekk kl. 17:30, fyrir eldri nemendur kl. 18:30.

Farið verður yfir skipulag skólaársins, kynntar helstu áherslur og kennsluaðferðir ásamt því að samstarf  heimilis og skóla verður rætt. Á fundinum verða m.a. umsjónarkennarar, sérkennarar, stjórnendur skólans og fulltrúi foreldrafélagsins.

Viðtöl umsjónarkennara við foreldra og nemendur fara fram mánudaginn 22. ágúst. Haft verður samband við heimilin varðandi nánari tímasetningu í vikunni. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 23. ágúst.

Við hvetjum forráðamenn til að mæta á þennan mikilvæga fund.

Til baka
English
Hafðu samband