Frístundabíll Garðabæjar
09.01.2012
Frístundabíll Garðabæjar verður áfram starfræktur á vorönn.
Frístundabíllinn hefur það hlutverk að keyra börn frá tómstundaheimilum grunnskóla í þrótta- og tómstundastarf.
Frístundabíllinn ekur alla virka daga kl. 14.30-17.00
Bíllinn fer eina ferð fram og til baka á hverjum 30 mínútum. Fyrsta ferð dagsins er frá Mýrinni kl. 14.30.
Verð: 7.500 krónur fyrir önnina.
Til að sækja um kort fyrir frístundabílinn þurfa foreldrar að fara inn á íbúavefinn Minn Garðabæ og fylla út umsókn þar. Greiðsluseðlar eru svo sendir til foreldra (nema annað sé tekið fram í umsókn).
Upplýsingar um frístundabílinn eru aðgengilegar á heimasíðu Garðabæjar
http://gardabaer.is/pages/3853