Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skíðaferðir í næstu viku

09.03.2012
Skíðaferðir í næstu viku

Í næstu viku eru fyrirhugaðar tvær skíðaferðir, önnur hjá félagsmiðstöðinni Herkúlez í unglingadeild og hin er árleg skíðaferð Sjálandsskóla.

Á þriðjudag fer stór hópur úr unglingadeild í skíðaferð til Dalvíkur með félagsmiðstöðinni Herkúles í Sjálandsskóla. Lagt verður af stað frá skólanum á þriðjudagsmorgni og komið heim föstudaginn 16.mars. Nánari upplýsingar hafa verið sendar til foreldra.

Á miðvikudag, 14.mars, er hin árlega vetrarferð Sjálandsskóla fyrirhuguð í Bláfjöll. Nánari upplýsingar verða sendar foreldrum. Ferðin er þó háð veðri en núna er veðurútlit gott fyrir miðvikudaginn. Fylgist með fréttum á heimasíðu skólans á þriðjudag (13.mars).

Við viljum vekja athygli á því að í skíðaferðum á vegum skólans er skylda að nota hjálm. Þeir sem ekki eiga skíðahjálm þurfa að útvega sér hjálm eða nota hjólahjálm.

Til baka
English
Hafðu samband