Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bláfjöll í dásamlegu veðri

18.04.2012
Bláfjöll í dásamlegu veðri

Í gær fóru nemendur og starfsfólk Sjálandsskóla í vel heppnaða ferð í Bláfjöll. Veðrið lék við okkur allan daginn og þrátt fyrir langa bið hjá sumum í skíðaleigunni þá nutum við dagsins í sól og blíðu. Flestir fóru á skíði eða snjóbretti en aðrir voru á sleðum. Sumir voru að fara á skíði í fyrsta sinn og fengu þeir leiðsögn hjá kennurum skólans. 7.bekkur gisti í nótt í Bláfjöllum og kemur heim eftir hádegi í dag.

Það var vel þess virði að bíða eftir þessum dásemdar degi í fjöllunum þar sem allir nutu veðurblíðunnar og komu sólbrenndir og sætir heim.

Myndir frá Bláfjalladeginum má sjá á myndasíðunni

 

Til baka
English
Hafðu samband