Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Megas í heimsókn

21.01.2014
Megas í heimsókn

Í síðustu viku kom tónlistarmaðurinn Megas í heimsókn ásamt sjónvarpsfólki frá RUV. Tilefnið er að núna eru að hefjast tökur á sjónvarpsþáttum með nokkrum þekktum tónlistarmönnum og grunnskólanemendum. Sjálandsskóli var svo heppinn að fá tækifæri til að taka þátt í þessu verkefni ásamt fimm öðrum skólum. Verkefnið snýst um það að nokkrir nemendur sjái um flutning og útsetningu tónlistar eftir tónlistarmennina. 

Sjónvarpið mun fylgjast með undirbúningnum, taka viðtöl við nemendur og heimsækja skólann reglulega fram að vori, þegar lagið verður frumflutt. 

Til baka
English
Hafðu samband