Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Líf og fjör á öskudegi

05.03.2014
Líf og fjör á öskudegi

Það var mikið fjör hjá okkur í dag á öskudeginum. Dagurinn hófst í morgunsöng og síðan fóru nemendur að æfa söng og skemmtiatriði. Klukkan tíu var dagskrá í sal með skemmtiatriðum og dansi. Þá voru búðir opnaðar í skólanum og krakkarnir fóru á milli búða, sungu og fengu nammi fyrir. 

Dagurinn gekk mjög vel fyrir sig og krakkarnir voru til fyrirmyndar. Um hádegi fengu þau sér að borða og þá var formlegri dagskrá lokið. Þeir nemendur sem eru í Sælukoti fóru þangað eftir hádegi.

Á myndasíðunni má sjá myndir frá öskudeginum

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband