Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Starfsfólk í kynnisferð

16.09.2014
Starfsfólk í kynnisferðStarfsfólk skólans fór í ferð sl. föstudag.   Byrjað var að fara og skoða nýjan framhaldsskóla í Mosfellsbæ.  Tekið var á móti hópnum, gengið um skólann með leiðsögn og farið yfir starf skólans sem er mjög áhugavert.  Næst var farið upp á Akranes og Grundarskóli heimsóttur.  Þar var einnig vel tekið á móti hópnum, starfið í skólanum kynnt og gengið um skólann.  Því næst var haldið upp Hvalfjörð í Heiðarskóla.  Þar var einnig farið yfir skólastarfið og aðallega innleiðingu á spjaldtölvum, en allir nemendur skólans hafa spjaldtölvur til eigin nota.  Að lokum var farið að Glym þar sem hluti hópsins gekk í átt að Glym.  Haldið var af stað til baka seinnipartinn og borðað saman í skólanum.   Ýmsar hugmyndir kviknuðu í þessari ferð sem munu eflaust verða nýttar í starfi skólans.
Til baka
English
Hafðu samband