Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Heimsókn frá Kenía

06.10.2014
Heimsókn frá Kenía

Í  morgun fengum við góða heimsókn alla leið frá Kenía. Það var Lucy forstöðukona Little bees sem er skóli fátækra barna í Naíróbí höfuðborg Kenía.   Lucy sem kölluð drottning fátækrahverfanna vegna þess að hún hefur helgað sig líf fátækra barna.  Hún hefur kennt börnunum í Little bee, skóla sem rekinn er af 50 stuðningsforeldrum á Íslandi.  Þetta félag heitir Vinir Kenía og stóð það fyrir komu Lucyar til landsins til þess að efla kynnin.  

 Lucy byrjaði að því að mæta í morgunsöng þar sem Edda aðstoðarskólastjóri sýndi nokkrar myndir og sagði nemendum frá Lucy og Little bee.  Nemendur sungu svo tvö lög sem voru tekin voru upp og nemendur í Little bee fá að sjá og heyra.  Lucy gekk svo um skólann og heilsaði upp á nemendur og starfsfólk. 

Nánar má lesa um Vini Little Bees á http://byflugur.blog.is/blog/byflugur/ og facebook https://www.facebook.com/vinir.bees?fref=ts

 

Nemendur syngja Jambo og Óskateina

Til baka
English
Hafðu samband