Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ævar og risaeðlurnar

17.03.2015
Ævar og risaeðlurnar

Ævar vísindamaður kom í heimsókn í morgunsöng í morgun.  Hann ræddi við nemendur um nýja bók sem er að koma út núna í maí.  Hann las kafla úr bókinni sem enginn hafði fengið að heyra áður, ekki einu sinni útgefandinn.  Kaflinn sem hann las fyrir nemendur var um nokkra krakka sem eru með risaeðlur í garðinum heima hjá sér og ein þeirra sleppur út.   Nemendur hlustuðu með athygli enda skemmtilegur upplestur hjá Ævari.

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband