Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Smáþjóðaleikar

29.05.2015
SmáþjóðaleikarSmáþjóðaleikar 2015 fara fram í næstu viku í Reykjavík.  Nemendur í 1. - 7. bekk í Sjálandsskóla og nemendur  Alþjóðaskólans tóku forskot á sæluna og voru með sína eigin smáþjóðaleika í dag.  Skipt var niður í fjögur svæði.  Á svæði eitt sem var við Ránargrund fór fram UNISEF hlaup.  Svæði tvö var á skólalóðinni og þar fór fram körfubolti, tennis, langstökk, þrístökk og hindrunarhlaup.  Á svæði 3 sem var í íþróttasalnum og í skólanum fór fram badminton, borðtennis og þrístökk. Einnig voru búnir til verðlaunapeningar og leyst verkefni um Blossa sem er lukkudýr Smáþjóðaleikanna 2015.  Á svæði 4 sem var við ilströndina þar fór fram strandblak, skutlukast, kúluvarp, spretthlaup og boðhlaup.  Í hádeginu kom Blossi, lukkudýr leikanna og heilsaði upp á nemendur.  Hann lék allskonar listir fyrir  eins og að standa á höndum og fara í heljarstökk.   „Smáþjóðaleikarnir“  tókust vel og nemendur beggja skólanna skemmtu sér vel enda veðrið með eindæmum gott í dag.   Hér má sjá myndir
Til baka
English
Hafðu samband