Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Myndir og fréttir frá Reykjum

01.09.2015
Myndir og fréttir frá Reykjum

Þessa vikuna er 7.bekkur Sjálandsskóla í skólabúðum á Reykjum. Þau lögðu af stað í gærmorgun og koma aftur á föstudag. Við fengum sendar myndir og fréttir frá fjörinu á Reykjum

Frá 7.bekkjar kennurum: 

Hrútafjörðurinn tók vel á móti okkur í gær með sól og blíðu. Ásamt Sjálandsskóla eru nemendum úr 7.bekk Árskóla á Sauðárkróki og Fossvogsskóla í Reykjavík. Mikil spenna var í nemendahópnum og þegar allir voru búnir að koma sér fyrir í herbergjunum sínum var strax farið í hádegismat og dagskráin hófst. Um kvöldið var skemmtileg kvöldvaka sem Simmi húsvörður stjórnaði og krakkarnir og kennarar höfðu mjög gaman af. Allir fóru sáttir að sofa eftir góðan dag.

Myndasíða 7.bekkjar.

Vefsíða skólabúðanna 

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband