Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Óveður -tilkynning frá Almannavörnum

07.12.2015
Óveður -tilkynning frá AlmannavörnumVegna óveðursins sem spáð er seinnipartinn hafa almannavarnir lýst yfir óvissustigi um allt land. Veður verður slæmt á höfuðborgarsvæðinu. SHS, lögregla og almannavarnir eru að vara fólk við og til að bregðast við varðandi röskun á skólastarfi verður unnið út frá eftirfarandi tilkynningu.

Foreldrar/forráðamenn sæki börnin sín fyrir kl. 16:00
Vegna óveðurs sem er spáð á höfuðborgarsvæðinu seinna í dag hefur verið lýst yfir óvissistigi og verklag um röskun á skólastarfi verið virkjað.
Foreldrar/forráðamenn eru beðnir um að tryggja að börn verði sótt fyrir klukkan 16:00, þannig að þau séu trygg heima þegar veðrið skellur á.
Jafnframt hafa skólar verið beðnir um að tryggja að börn yfirgefi ekki skólana nema í fylgd með fullorðnum, enda eru þau örugg í skólanum.

Slökkviliðið þakkar því hversu vel gekk í síðasta óveðri sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið þann 1. desember sl. og hversu vel foreldrar og forráðamenn fóru eftir ráðleggingum og héldu sig heima við.
Nánari upplýsingar má finna á shs.is og á Facebook-síðu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs.
Til baka
English
Hafðu samband