Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ragnheiður Eyjólfsdóttir rithöfundur í heimsókn

14.12.2015
Ragnheiður Eyjólfsdóttir rithöfundur í heimsókn

Í morgun fengum við rithöfundinn Ragnheiði Eyjólfsdóttir í heimsókn og hún las úr bók sinni Arftakinn, sem hlaut íslensku barnabókaverðlaunin í ár. 

Bókin er hennar fyrsta bók og Ragnheiður sæki innblástur í norrænar sögur og evrópskar sagnir og ævintýri.

Arftakinn fjallar um Sögu sem sér hluti sem enginn annar sér. Hún er þó fyrir löngu búin að læra að þegja yfir þeim. Eftir að húshjálpin í kjallaranum hverfur sporlaust og í hennar stað birtist skuggalegur óvættur fær Saga loks skýringu á því hvers vegna hún er öðruvísi en aðrir. En það er skýring sem erfitt er að horfast í augu við og um leið upphafið að ótrúlegu ævintýri.

 

Til baka
English
Hafðu samband