Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hjólað í íþróttatíma

26.05.2016
Hjólað í íþróttatíma

Í þessari viku hafa nemendur í 1.bekk verið að æfa hjólreiðar í íþróttatímanum. Hrafnhildur íþróttakennari fer þá með nemendur út á skólalóð þar sem settar eru upp hjólaþrautabrautir sem nemendur hjóla eftir. Sumir eru að byrja að æfa sig að hjóla án hjálpardekkja og aðrir eru vanir hjólakappar og þeytast um skólalóðina á hjólunum sínum.

Hjólreiðar eru vanalega bannaðar á skólalóðinni í frímínútum og krökkunum fannst því gaman að fá tækifæri til að hjóla út um allt á skólalóðinni.

 Á myndasíðunni má sjá myndir frá hjólatímanum 

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband