Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Verum saman á vaktinni -þri.21.jan.

16.01.2020
Verum saman á vaktinni -þri.21.jan.

VERUM SAMAN Á VAKTINNI - ,,Það þarf heilt þorp til að ala upp barn“
Fræðslukvöld um áhættuhegðun barna og unglinga og forvarnir fyrir foreldra og íbúa í Garðabæ.
Þriðjudaginn 21. janúar kl. 20:00-22:15 í hátíðarsal Sjálandsskóla
Gengið inn austan megin í húsið, við íþróttasalinn. Einnig hægt að ganga inn vestan megin þar sem aðalbílastæði skólans er.

Viðburðurinn á Facebook síðu Garðabæjar

Dagskrá
Birgir Örn Guðjónsson ,,Biggi lögga“ og Leifur Gauti Sigurðsson rannsóknarlögreglumaður í Hafnarfirði fræða okkur um það helsta sem er í gangi og eftir hverju við þurfum að leita.
• Hvaða efni eru í umferð og hvernig líta þau út?
• Hver eru einkennin og eftir hverju geta foreldrar leitað?

EITT LÍF - reynslusaga
Minningarsjóður Einars Darra stendur að fræðslu- og forvarnarverkefninu EITT LÍF.
• Fulltrúi verkefnisins deilir reynslusögu.

Guðrún B. Ágústsdóttir ráðgjafi frá Foreldrahúsi
• Fer í gegnum áhættuþætti, fikt og neyslu á efnum.
• Hvert geta foreldrar leitað og hvað geta foreldrar gert sjálfir?

Fundarstjóri er Jón Halldórsson, framkvæmdastjóri KVAN og þjálfari á námskeiðum þess.
Áhersla í verkefnum KVAN er að styðja við börn og ungt fólk til að vaxa, þroskast og öðlast aðgengi að eigin styrkleikum.

Boðið verður upp á kaffi og konfekt.
Verið velkomin!

ÍTG, íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
Grunnstoð Garðabæjar, fulltrúar foreldrafélaga
Grunnskólarnir í Garðabæ

Til baka
English
Hafðu samband