Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Öryggismyndavélar

20.01.2020
Öryggismyndavélar

Vakin er athygli forráðamanna á því að stafrænar öryggismyndavélar eru í skólanum. Um er að ræða öryggismyndavélar sem eru staðsettar utanhúss við skólann. Í því felst rafræn vöktun á skólabyggingunni og skólalóðinni sem er gert í þágu öryggis og í þeim tilgangi að varna því að eigur séu þar skemmdar eða þeim stolið.

Myndefni verður einungis skoðað ef upp koma atvik er varða eignavörslu eða öryggi einstaklinga, s.s. þjófnaður, skemmdarverk eða slys. Heimild til skoðunar er aðgangsstýrð og verður eingöngu skoðuð af þeim sem til þess hafa heimild og rík trúnaðarskylda gildir um störf þeirra.  Myndefni er vistað að hámarki í 90 daga og því er eytt að þeim tíma loknum.

Vöktunin er fer fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og eru merkingar með viðvörunum um rafræna vöktun eru uppsettar á hinum vöktuðu svæðum.

Til kynningar og nánari fræðslu varðandi eftirlitið sem hér um ræðir skal bent á reglur Garðabæjar um rafræna vöktun öryggismyndavéla sem taka til þessarar vöktunar

Einnig er bent á að almennar upplýsingar um rafræna vöktun, ásamt leiðbeiningum er að finna í bæklingi á vef persónuverndar:

Til baka
English
Hafðu samband