Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Íþróttir og sund næstu daga

08.10.2020
Íþróttir og sund næstu daga

Skóla-og íþróttasvið allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa í samráði við almannavarnir höfuðborgarsvæðisins tekið þá ákvörðun að stöðva allt íþróttastarf og kennslu sem fram fer innandyra á þeirra vegum frá og með deginum í dag til 19.október. Öll íþróttakennsla mun fara fram utandyra að teknu tilliti til ítrustu sóttvarna. Sundlaugar verða enn fremur lokaðar fyrir almenning og skólasund fellur niður.

Íþróttatímar í Sjálandsskóla verða því úti og í sundtímum verður hreyfistund með sundkennara, annað hvort úti eða inni.

Til baka
English
Hafðu samband