Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

08.05.2018

Nordplus verkefni Sjálandsskóla

Nordplus verkefni Sjálandsskóla
Á laugardaginn fóru nokkrir nemendur Sjálandsskóla ásamt kennurum til Hillerød í Danmörku að heimsækja KonTiki skólann sem er einkaskóli. Sjálandsskóli er í Nordplusverkefni með Dönum og Eistum, og fyrr í vetur komu nemendur frá Danmörku og Eistlandi...
Nánar
04.05.2018

Stelpur og tækni -9.bekkur

Stelpur og tækni -9.bekkur
Stelpur og tækni dagurinn var haldinn í fimmta sinn á Íslandi 3. maí. Dagurinn er haldinn af Háskólanum í Reykjavík í samvinnu við Samtök iðnaðarins, SKÝ og Aðgerðahóp stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti
Nánar
02.05.2018

Forvarnarhlaup Lions í 5.bekk

Forvarnarhlaup Lions í 5.bekk
Á hverju ári taka nemendur í 5.bekk þátt í forvarnarhlaupi Lions ásamt öðrum 5.bekkjar nemendum í Garðabæ. Hlaupið er boðhlaup þar sem nemendum í bekknum er skipt upp í hópa. Á myndasíðunni má sjá myndir frá hlaupinu í dag.
Nánar
27.04.2018

Listadagar í Sjálandsskóla

Listadagar í Sjálandsskóla
Þessa vikuna hafa verið listadagar í Garðabæ og nemendur í Sjálandsskóla tóku að sjálfsögðu þátt í því. Hver árgangur vann ákveðið verkefni tengt list, s.s.myndlist, tónlist, kvikmyndagerð o.fl.
Nánar
25.04.2018

Myndir frá 5.bekk

Myndir frá 5.bekk
Á degi umhverfisins fóru nemendur í 5.bekk að tína rusl meðfram strandlengjunni við Gálgahraun og kennarar kynntu hugtakið "Plokk" (e.plogging) fyrir nemendum. Í íslensku eru nemendur í 5.bekk að lesa bókina "Fólkið í blokkinni" og þeir bjuggu til...
Nánar
18.04.2018

4.bekkur á hönnunarsafninu

4.bekkur á hönnunarsafninu
Á mánudaginn fóru nemendur í 4. bekk í heimsókn á Bókasafn Garðabæjar og í Hönnunarsafnið í tilefni Listadaga í Garðabæ. Þau fræddust um uppfinningamenn og þá sérstaklega um Einar Þorstein arkitekt og uppfinnigarmann.
Nánar
17.04.2018

Sumardagurinn fyrsti

Sumardagurinn fyrsti
Á fimmtudaginn er sumardagurinn fyrsti og þá er frí í skólanum og Sælukot er einnig lokað. Á föstudag er kennsla samkvæmt stundaskrá.
Nánar
16.04.2018

Útikennsla með leikskólanum Sjálandi

Útikennsla með leikskólanum Sjálandi
Nemendum í 1. og 2. bekk var boðið að koma í útikennslu með leikskólanum Sjálandi. Okkar nemendur buðu leikskólakrökkunum upp á pönnukökur með rjóma og sultu. Útikennslan gekk mjög vel og það voru allir sáttir og sælir eftir daginn.
Nánar
16.04.2018

Nemendur í 1.bekk fengu hjálma

Nemendur í 1.bekk fengu hjálma
Á föstudaginn fengu nemendur í 1.bekk góða gjöf þegar félagar í Kiwanis komu og færðu þeim hjólahjálma. Á hverju vori fá nemendur í 1.bekk gefins hjálma sem munu væntanlega koma sér vel þegar hjólatímabilið er að hefjast.
Nánar
12.04.2018

Tónsköpun hjá 9.bekk

Tónsköpun hjá 9.bekk
Þessa vikuna hafa nemendur níunda bekkjar í Sjálandsskóla tekið þátt í afar spennandi norrænu tónsköpunarverkefni. Verkefnið er danskt að uppruna en þátttökulöndin eru auk Íslands og Danmerkur, Grænland og Færeyjar. Í verkefninu fá nemendur send...
Nánar
11.04.2018

Kennarar í útieldun

Kennarar í útieldun
Í gær fengu kennarar í Sjálandsskóla kennslu í útieldun. Það voru starfsmenn skólans og skátarnir, Hrafnhildur Sigurðardóttir og Sigurður Guðleifsson, sem sýndu nokkrar aðferðir við útieldun, en skólinn á ýmsar græjur sem nýtast í útieldun.
Nánar
09.04.2018

PISA próf í 10.bekk

PISA próf í 10.bekk
Í morgun tóku nemendur í 10.bekk þátt í alþjóðlegu PISA-prófi. Dagurinn hófst á morgunverði á kennarastofunni og svo kom fulltrúi frá Menntamálastofnun og lagði prófið fyrir. Prófið er rafrænt og er í þremur hlutum. Nemendur höfðu áður fengið...
Nánar
English
Hafðu samband