Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sjálandsskóli fylgir reglum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS), um röskun á skólastarfi vegna óveðurs.

Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn fylgist sjálfir með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum upplýsingum sem gætu haft áhrif á skóla- og frístundastarf barnanna og hegði sér í samræmi við aðstæður hverju sinni. Aðstæður geta þróast með ófyrirséðum hætti og verið mismunandi eftir svæðum.

Skólar, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar eru opnar nema annað sé tilkynnt. Í upphafi skóladags getur mönnun skóla verið takmörkuð og geta foreldrar þá búist við því að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Foreldrar eru hvattir til að taka slíkum óskum vel.

Foreldrar leggja ávallt sjálfir mat á það hvort fylgja þurfi barni í skóla, óháð því hvort tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlilega fjarvist. Sama gildir ef börn eða foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.

Mikilvægt er að fólk fari ekki af stað til skóla eða vinnu ef það treystir sér ekki eða er vanbúið til farar, t.d. vegna vanbúinnar bifreiðar til vetraraksturs.

Tilmæli Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins til foreldra varðandi viðbrögð við óveðri

Bæklingur fyrir foreldra um röskun á skólastarfi vegna veðurs 

Disruption of school operations and after-school programs (english)

Upplýsingar um óveður á vef Garðabæjar 

   
English
Hafðu samband