Áfallaráð
Í áfallaráði sitja eftirtaldir aðilar:
Skólastjóri, skólaritari og skólahjúkrunarfræðingur. Auk þeirra mun skólasálfræðingur og prestur vera innan handar. Skólastjóri eða staðgengill hans kallar saman áfallaráð og stýrir vinnu þess.
Starf áfallaráðs
Áfallaráð gerir vinnuáætlun svo bregðast megi við áföllum sem orðið hafa s.s. bráð veikindi, alvarleg slys, dauðsföll eða aðrir þeir atburðir sem líklegt er að kalli fram sorgarviðbrögð og/eða áfallastreitu.
Vinnuáætlunin verður að vera skýr og afdráttarlaus vinnuáætlun um hvert hlutverk þeirra er sem í ráðinu eru, hvernig og í hvaða röð eigi að bregðast við hverju einstöku tilviki.
Mikilvægt er að huga að óskum fjölskyldna þeirra sem í hlut eiga hverju sinni. Við skipulag áfallahjálpar og viðbragða, þarf að hafa í huga alla þá einstaklinga sem koma að starfi skólans s.s. nemendur, aðstandendur, stjórnendur og annað starfsfólk skólans.
Áfallaráð skal sjá um að allt starfsfólk skólans fái kynningu á því hvernig bregðast skuli við áföllum. Einnig þarf áfallaráð að sjá til þess að kennarar og annað starfsfólk sem að áfallahjálp vinnur fái stuðning og aðstoð.
Áföll
• Alvarleg slys (nemanda, aðstandenda eða starfsfólks skólans)
• Alvarleg veikindi (nemanda, aðstandenda eða starfsfólks skóla)
• Langvinnir sjúkdómar (nemanda, aðstandenda eða starfsfólks)
• Andlát (nemanda, aðstandenda, starfsfólks eða maka starfsfólks)
Áfallaráð skal funda strax og skólastarf hefst að hausti og kanna hvort breytingar hafi orðið á aðstæðum nemenda og/eða starfsfólks vegna dauðsfalla, alvarlegra veikinda og/eða slysa eða annarra áfalla. Áfallaráð skal taka ákvörðun um viðbrögð og/eða aðgerðir. Ritari heldur utan um slíkar aðgerðir.
Vinnutilhögun áfallaráðs
Nemendur
• Langvinnir sjúkdómar/alvarleg veikindi nemenda:
• Viðkomandi starfsfólki og skólafélögum skal gerð grein fyrir aðstæðum.
• Ákvörðun áfallaráðs hvernig taka skuli á hverju tilfelli eftir aldri nemenda
• og aðstæðum hverju sinni.
• Aðilar úr áfallaráði ásamt umsjónakennara ræða við og vinna með
• nemendum sem málinu tengjast.
Þegar nemandi kemur aftur í skólann:
• Undirbúa þarf skólafélaga undir komu nemandans aftur í skólann.
• Umsjónarkennari og/eða aðili úr áfallaráði ræða við nemanda og aðstandendur áður enn hann kemur í skólann og hlusta eftir því hvernig hann vill hafa aðstæður.
• Umsjónakennari fylgist sérlega vel með nemandanum næstu daga og vikur og lætur hann vita að hann hafi alltaf aðgang að aðstoð.
Alvarleg slys á nemanda:
Ef slys verða í skólanum:
• Ef nemandi verður fyrir alvarlegu slysi í skólanum skal strax hafa samband við lögreglu og forráðamenn nemandans.
• Áfallaráð fundar og ákveður hvernig bregðast skuli við.
• Aðilar úr áfallaráði ræða við nemendur sem tengjast málinu.
• Nemendum og starfsfólki er gerð grein fyrir aðstæðum.
• Skólastjóri bera ábyrgð á að enginn fari heim úr skólanum með rangar eða misvísandi upplýsingar um atburðinn.
• Skólastjóri er tengiliður við fjölmiðla ef þeir sýna atburðinum áhuga. Allir starfsmenn skulu vísa á þá ef til þeirra er leitað eftir upplýsingum.
Slys sem verða utan skólatíma:
• Umsjónarkennari fær staðfestingu á atburði.
• Áfallaráð fundar svo fljótt sem auðið er og tekur ákvörðun um hvernig bregðast skuli við.
• Öðru starfsfólki sem að nemandanum og námshópnum koma verði tilkynnt um atburðinn eins fljótt og auðið er.
Næstu dagar:
Mikilvægt er að upplýsingastreymi til skólans sé gott og rétt. Umsjónarkennari kemur upplýsingum til skólafélaga.
Þegar nemandi kemur aftur í skólann:
• Undirbúa þarf skólafélaga undir komu nemandans aftur í skólann.
• Umsjónarkennari og/eða aðili úr áfallaráði ræða við nemanda og aðstandendur áður enn hann kemur í skólann og hlusta eftir því hvernig
• hann vill hafa aðstæður.
• Umsjónakennari fylgist sérlega vel með nemandanum næstu daga og vikur og lætur hann vita að hann hafi alltaf aðgang að aðstoð.
Andlát nemanda:
• Skólastjóri sér um að afla staðfestra upplýsinga um atburðinn og hafa samband við heimilið.
• Áfallaráð kallað saman á stuttan fund þar sem ráðið skiptir með sér verkum og ákveður fyrstu viðbrögð skólans.
• Mjög áríðandi er að allar aðgerðir skólans undir viðkomandi forráðamenn til samþykkis og hafa þá með í ráðum frá upphafi.
• Gæta skal þess að náin skyldmenni hins látna sem eru við nám eða störf við skólann fái fréttirnar sérstaklega, en ekki yfir hóp.
• Skólastjóri upplýsir allt starfsfólk skólans um andlátið.
• Skólaritari skólans sér um að tilkynna þeim sem fjarri eru.
• Skólastjóri eða annar úr áfallaráði ásamt sóknarpresti og umsjónarkennara tilkynna andlátið strax í viðkomandi umsjónarhópi.
• Hafa ber í huga að hlúa þarf að nemendum í bekknum eins og hægt er með aðstoð hjúkrunarfræðings, námsráðgjafa og/eða sáfræðings.
• Sóknarprestur talar við börnin, kveikir á kerti og biður með þeim stutta bæn.
• Umsjónarkennarar tilkynna andlátið í sínum umjónarhópum. Mikilvægt er að allir fái fréttirnar samtímis.
• Umsjónarmaður dregur fána í hálfa stöng þegar tilkynningin hefur borist öllum til eyrna. Mikilvægt er að nemendur fari heim í lok skóladags með skriflega tilkynningu til forráðamanna til að þeir geti brugðist við viðbrögðum nemenda þegar heim er komið.
Aðstandendur nemenda
Alvarleg veikindi aðstandenda nemenda:
• Umsjónarkennari fær staðfestingu á veikindunum hjá forráðamanni nemandans.
• Upplýsingum er komið til allra sem málið varðar.
• Áfallaráð fundar um málið og ákveður í samráði við forráðamenn hvernig unnið skuli að málinu
• Aðilar úr áfallaráði aðstoða umsjónakennara við að undirbúa umsjónarhópinn hvernig hann tekur á móti nemandanum þegar hann kemur aftur í skólann.
Alvarleg slys aðstandenda nemanda:
• Umsjónarkennari fær staðfestingu á slysinu hjá forráðamanni nemandans.
• Upplýsingum er komið til annarra starfsmanna sem málið varðar.
• Áfallaráð fundar um málið og ákveður í samráði við forráðamenn hvernig unnið skuli að málinu.
• Aðilar úr áfallaráði aðstoða umsjónakennara við að undirbúa bekkinn hvernig tekið er á móti nemandanum þegar hann kemur aftur í skólann.
Andlát aðstandanda nemanda:
• Skólastjóri eða umsjónakennari fær staðfestingu á andlátinu hjá forráðamanni nemandans.
• Upplýsingum er komið til þeirra starfsmanna sem málið varðar.
• Mjög áríðandi er að bera allar aðgerðir skólans undir viðkomandi forráðamenn til samþykkis og hafa þá með í ráðum frá upphafi.
• Áfallaráð kallað saman (ásamt sóknarpresti) á stuttan fund þar sem ráðið skiptir með sér verkum og ákveður fyrstu viðbrögð skólans.
• Skólastjóri upplýsir allt starfsfólk skólans um andlátið.
• Skólaritari skólans sér um að tilkynna þeim sem fjarri eru.
• Umsjónarkennari sér um áframhaldandi vinnu með bekknum en getur þó alltaf leitað til aðila úr áfallaráði um aðstoð.
• Bekkurinn undirbýr samúðarkveðju.
• Skólinn sendir samúðarkveðju til nemandans og fjölskyldu.
• Áfallaráð tekur ákvörðun um hvaða fulltrúi skólans verði við útförina.
• Aðili úr áfallaráði ásamt umsjónakennara heimsækir nemandann og færir honum gjöf ( t.d. kerti, blóm og kort frá bekknum).
• Áfallaráð aðstoðar umsjónakennara við undirbúning þess að nemandinn mæti í skólann aftur til að auðvelda endurkomu hans.
Starfsmenn skólans
Alvarleg veikindi starfsmanns skólans:
• Skólastjóri/áfallaráð ákveður í samráði við viðkomandi starfsmann hvernig tilkynna skuli samstarfsfólki og nemendum veikindin.
Alvarleg slys starfsmanns skólans:
• Áfallaráð ákveður í samráði við viðkomandi starfsmann eða aðstandendur hans hvernig tilkynna skuli samstarfsfólki og nemendum slysið.
Andlát starfsmanns:
• Skólastjóri leitar staðfestra upplýsinga um andlátið.
• Skólastjóri upplýsir allt starfsfólk skólans um andlátið.
• Skólaritari skólans sér um að tilkynna þeim sem fjarri eru.
• Gæta þarf að náin skyldmenni hins látna, sem eru við nám eða störf við skólann fái fregnina sérstaklega – ekki yfir hópinn.
• Áfallaráð fundar um hvernig tilkynna eigi nemendum andlátið.
• Ef umsjónarkennari fellur frá tilkynnir skólastjóri ásamt aðila úr áfallaráði og sóknarpresti umsjónarbekk andlátið og hlúir að bekknum.
• Umsjónarmaður dregur fána í hálfa stöng þegar tilkynningin hefur borist öllum til eyrna.
• Áfallaráð tekur ákvörðun um hvernig upplýsingum um andlátið skuli komið til forráðamanna nemenda.
• Skólastjóri ásamt aðila úr áfallaráði fer heim til nánustu aðstandenda starfsmanns.
• Skólinn sendir samúðarkveðju til nánustu aðstandenda.
Andlát maka/barns starfsmanns:
• Skólastjóri leitar staðfestra upplýsinga um andlátið.
• Skólastjóri upplýsir allt starfsfólk skólans um andlátið
• Skólaritari skólans sér um að tilkynna þeim sem fjarri eru.
• Gæta þarf að náin skyldmenni hins látna, sem eru við nám eða störf við skólann fái fregnina sérstaklega – ekki yfir hópinn
• Ef maki/barn umsjónarkennara fellur frá tilkynna skólastjóri eða aðili úr áfallaráði umsjónarhópnum andlátið.
• Áfallaráð tekur ákvörðun um hvernig upplýsingum skuli komið til forráðamanna nemenda.
• Aðilar úr áfallaráði veita þeim kennara sem við bekknum tekur aðstoð næstu daga. Áfallaráð tekur ákvörðun um hvernig upplýsingum um andlátið skuli komið til forráðamanna nemenda.
• Skólastjóri fer heim til nánustu aðstandenda starfsmanns.
• Skólinn sendir samúðarkveðju til nánustu aðstandenda.
Aðstoð við börn eftir áfall, bæklingur Rauða krossins