Námsráðgjafi í Sjálandsskóla er
Rósa Siemsen
rosasi@Sjalandsskoli.is
Námsráðgjafi er með skrifstofu á 1. hæð rétt hjá bókasafni. Viðtalstímar fyrir nemendur og foreldra eru eftir samkomulagi. Hafið samband við í síma 590 3100 eða sendið tölvupóst.
Helstu viðfangsefni námsráðgjafa:
• Stendur vörð um velferð nemenda.
• Leiðbeinir nemendum um vinnubrögð í námi.
• Veitir ráðgjöf og fræðslu um námstækni og próftækni.
• Veitir hópráðgjöf /fræðslu vegna námstækni, námsvals, samskiptavanda og fleira.
• Veitir nemendum einstaklingsráðgjöf.
• Veitir persónulegan og félagslegan stuðning við nemendur.
• Leiðbeinir nemendum í persónulegum málum þannig að þeir eigi auðveldara með að ná settum markmiðum.
• Aðstoðar nemendur við að gera sér grein fyrir eigin áhugasviðum og meta hæfileika sína raunsætt miðað við nám og störf.
• Sinnir fyrirbyggjandi starfi í forvörnum s.s. gegn vímuefnum, einelti, ofbeldi o.fl. í samstarfi við aðra starfsmenn og foreldra.
• Vinnur að bættum samskiptum innan skólans.
• Leggur árlega fyrir könnun á tengslum og líðan nemenda skólans.
• Tekur á móti nýjum nemendum.
• Situr reglulega nemendaverndarráðs- og lausnateymisfundi.
• Situr í eineltisteymi skólans.
• Veitir nemendum ráðgjöf og fræðslu um náms- og starfsval.
• Undirbýr nemendur undir flutning milli skóla eða skólastiga.
Námsráðgjafi vinnur í nánu samstarfi við foreldra. Einnig hefur hann samstarf og samráð við ýmsa aðra s.s. kennara, sérkennara, skólasálfræðing og hjúkrunarfræðing og vísar málum til þeirra eftir því sem við á.