Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Heilsugæsla Sjálandsskóla er á vegum Heilsugæslunnar í Garðabæ, sími 513-5500.
Skólahjúkrunarfræðingur er Tinna Bjarnadóttir
Netfang: sjalandsskoli@heilsugaeslan.is
Viðverutímar hjúkrunarfræðings eru:
Mánudagur - kl. 8-12
Þriðjudagur - kl. 9:15-12
Miðvikudagur - Ekki við
Fimmtudagur - kl. 8-12
Markmið heilsuverndar skólabarna er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar.
Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru forvarnir, fræðsla, skimanir og bólusetningar. Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu og Embættis landlæknis um heilsuvernd grunnskólabarna.
Heilbrigðisfræðsla
Skipulögð heilbrigðisfræðsla er veitt í öllum árgöngum og er áherslan á að hvetja til heilbrigðra lífshátta. Eftir fræðslu fá foreldrar upplýsingar í tölvupósti um fræðsluna. Þá gefst þeim kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu og hvernig hægt er að nýta það í daglegu lífi. Upplýsingar um fræðslu í árgöngum má finna á Heilsuvera.is
Skimanir
Skimað er fyrir ákveðnum heilbrigðisvandamálum og eru skimanir framkvæmdar í 1., 4., 7. og 9. bekk. Þær felast í mælingu á hæð, þyngd og sjónskerpu. Nemendur í öðrum árgöngum eru skimaðir eftir þörfum. Ef frávik reynist í skimun er ávallt haft samband við forráðamann.
Heilsueflandi viðtöl um lífsvenjur og líðan
Þegar skimanir fara fram í 1., 4., 7. og 9. bekk ræðir skólahjúkrunarfræðingur við nemendur um líðan og lífsvenjur. Markmið viðtalanna er að styrkja vitund nemenda um eigið heilbrigði og líðan. Einnig að geta gripið til úrræða ef vart verður við vanlíðan eða áhyggjur.
Bólusetningar
Bólusetningum er ætlað að verja einstaklinginn gegn alvarlegum smitsjúkdómum.
Í 7. bekk er bólusett við mislingum, hettusótt og rauðum hundum (ein sprauta) og frá haustinu 2023 verður bólusett gegn HPV (Human papilloma veirum) óháð kyni við 12 ára aldur. HPV bólusetning er gefin tvisvar með 6 mánaða millibili.
Í 9. bekk er bólusett við barnaveiki, stífkrampa, kíghósta og mænusótt (ein sprauta).
Til að sjá nánar upplýsingar um bólusetningar barna þá er hægt að skoða það á vefsíðu Embættis Landlæknis.
Áður en kemur að bólusetningu er sendur tölvupóstur til foreldra með upplýsingum um tímasetningu. Gott er að nemendur komi með bólusetningarskírteini sín í skólann þegar bólusetning fer fram.
Hafið samband við skólahjúkrunarfræðing ef:
• Nánari upplýsinga er óskað
• Talið er að barn sé ekki að fullu bólusett
• Óskað er eftir því að barn sé ekki bólusett
Það er á ábyrgð foreldra að láta bólusetja börn sín.
Hagnýtar upplýsingar
Veikindi og slys
Ef óhapp eða slys verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæsluna eða slysadeild skulu foreldrar fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í þá á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af heilsuvernd skólabarna.
Langveik börn
Mikilvægt er að skólahjúkrunarfræðingur viti af börnum sem eru með fötlun eða langvinnan og/eða alvarlegan sjúkdóm, s.s. sykursýki, ofnæmi, flogaveiki, blæðingarsjúkdóma eða aðra alvarlega sjúkdóma. Hlutverk skólahjúkrunarfræðingsins er að skapa þessum börnum viðeigandi aðstæður og umönnun í skólanum í samvinnu við foreldra og starfsfólk skólans.
Höfuðlús
Höfuðlús birtist reglulega í skólum landsins og er mikilvægt að foreldrar kembi hár barna sinna reglulega yfir skólaárið. Rétt er að láta skólann vita ef lús finnst í hári barns og skólahjúkrunarfræðingur getur leiðbeint varðandi lúsasmit