- Við komum með hollt og gott nesti í skólann.
- Neysla sælgætis og sykurdrykkja er óþörf á skólatíma og því ekki heimil nema á sérstökum tyllidögum skólans.
- Nemendur á unglingastigi mega nota tyggjó innan þess ramma sem skólareglur heimila.
- Við komum úthvíld í skólann.
- Við komum „fyrir eigin vélarafli“ skólann eins og kostur er og notum alltaf viðeigandi öryggisbúnað á farkostum okkar.
- Við notum farkosti okkar eins og reiðhjól og vespur aðeins á leið til og frá skóla og í verkefnum undir stjórn kennara (til dæmis hjólavettvangsferðir). Í verkefnum með kennara eiga nemendur alltaf að nota viðeigandi öryggisbúnað. Notkun vespa og reiðhjóla er óheimil á skólalóðinni m.a. í útivist og frímínútum.
- Við flokkum sorp, notum efni og hráefni í lágmarki og endurnýtum eins og kostur er.