Innritun og móttaka nýrra nemenda
Forráðamenn innrita nýja nemendur á heimasíðu Garðabæjar inn á vefnum Minn Garðabær en þar er rafrænt eyðublað sem ber að nota þegar sótt er um skólavist. Þjónustuver Garðabæjar sendir umsóknina til skólans. Á vorin er auglýstur sérstakur tími til umsóknar um skólavist nýnema. Á vorin eru haldnir kynningarfundir þar sem helstu áherslur skólans eru kynntar og boðið er upp á skoðunarferð um skólann. Í maí er verðandi nemendum í 1. bekk boðið í vorskóla þar sem þeir fá að upplifa og kynnast hluta úr skóladegi.
Ef nemendur eru að innritast á öðrum tímum skólaársins er foreldrum bent á að hafa samband við skrifstofu skólans og óska eftir kynningu á skólanum. Nemendur sem eru með lögheimili í öðru sveitarfélagi en Garðabæ verða að sækja um skólavist utan sveitarfélags. Þó að forráðamenn hafi fengið staðfestingu á að umsókn skólans um skólavist sé móttekin er ekki hægt að ganga að skólavist vísri. Skólastjóri ákveður hvort skólavist nemenda utan lögheimilis er samþykkt, það fer m.a. eftir fjölda í bekkjum o.fl.
Þegar skólavist hefur verið samþykkt skráir ritari skólans nemandann í bekk, hefur samband við forráðamenn og upplýsir kennara og námsráðgjafa um nýjan nemanda.
Hlutverk ritara/sérfræðings
Raðar nemendum í bekkjardeildir í samráði við umsjónarkennara og stjórnendur
Sér um innritun og heldur utan um nemendaskrá
Lætur umsjónarkennara og námsráðgjafa vita um nýjan nemenda eins fljótt og hægt er
Býður nemandanum og forráðamönnum í heimsókn í skólann ef við á
Útvegar og leiðbeinir forráðamönnum um upplýsingavefinn Námfús og sendir aðgangsorð
Útskýrir og leiðbeinir forráðamönnum um tómstundaheimilið ef við á
Ef nemandi er af erlendu bergi brotinn, sjá móttökuáætlun nemenda með annað móðurmál en íslensku
Upplýsir kennsluráðgjafa um nýjan nemanda sem sér um netfang o.fl. sem tengist upplýsingatækni
Hlutverk stjórnenda
Tekur á móti nemenda og forráðamanni í fyrstu heimsókn, útskýrir skólastarfið og sýnir skólann
Sér um að setja móttöku nemandans í viðeigandi ferli
Hlutverk umsjónarkennara
Kynnir nemandann fyrir bekknum
Afhendir stundatöflu og vísar á almennar upplýsingar s.s. bekkjarlista
Fær upplýsingar frá foreldrum og um námslega stöðu
Hefur samband við fyrri skóla og fær upplýsingar um nám nemandans. Ef þörf krefur hefur umsjónarkennari samband við sérkennara og námsráðgjafa
Upplýsir list- og verkgreinakennara um nýjan nemanda og setur í hópa
Upplýsir sérkennara um stöðu nemandans ef tilefni er til
Upplýsir námsráðgjafa um nýjan nemanda
Hlutverk námsráðgjafa
Á samtal við nemandann fljótlega eftir að skólavist er hafin
Fylgir nemandanum eftir með því að fylgjast með honum og hitta hann eins oft og þörf krefur (sjá starfssvið námsráðgjafa)