Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fræðslufundur fyrir foreldra í Garðabæ kl.20-22

17.04.2012

Kæru foreldrar

 

Við minnum á fræðslufund fyrir foreldra í Garðabæ sem haldinn verður í sal Sjálandsskóla þriðjudaginn 17. apríl klukkan 20:00 - 22:00.

 

Gómsætar veitingar í boði og fróðlegir fyrirlestrar en þá mun Margrét Pála heimsækja okkur og fjalla um jákvæð samskipti, Jóhann Ingi sálfræðingur fjallar um þarfir barna, uppeldisaðferðir og sjálfstraust ... hvernig við byggjum upp sterka sjálfsmynd og öflugt sjálfstraust barna okkar sem og okkar eigið en foreldrar með öflugt sjálfstraust eru börnum sínum mikilvægar fyrirmyndir. Hafþór Birgisson frá SAFT verður einnig hjá okkur og leiðir okkur í gegnum jákvæða og örugga netnokun barna og unglinga. Internetið er frábær upplýsingaveita og tæki til samskipta en þar felast einnig ýmsar hættur sem mikilvægt er fyrir okkur öll að þekkja.

 

Aðgangur er ókeypis, allir velkomnir og því hvetjum við ykkur til að fjölmenna á fundinn ;)

 

Frekari upplýsingar má finna á www.gardabaer.is en eins erum við líka á facebook, Grunnstoð Garðabæjar.

 

Fyrir hönd stjórnar foreldrafélags Sjálandsskóla og Grunnstoðar Garðabæjar, Þórey Ólafsdóttir

Til baka
English
Hafðu samband