Lionshlaup hjá 5. bekk
![Lionshlaup hjá 5. bekk Lionshlaup hjá 5. bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2008-2009/56bekkur/7.-mai-2009/P5079953.jpg?proc=ContentImage)
Lionshlaupið í Sjálandsskóla var haldið fimmtudaginn 8. maí. Þetta er í annað skiptið sem hlaupið er haldið hér í skólanum en það hefur verið haldið í öðrum skólum til margra ára. Mikil stemming myndaðist strax um morguninn þar sem þrír bekkir áttu að keppa sín á milli í boðhlaupi. Bekkirnir þrír, A(rauður), B (gulur) og C (grænn) bjuggu til hvatningarspjöld og máluðu tákn á andlit til að styðja sitt lið. Áður en keppnin hófst hélt Ragnheiður Ragnarsdóttir sunddrottning Garðabæjar fyrirlestur um heilbrigt líferni og hvað þarf að gera til að ná góðum árangri í því sem maður tekur sér fyrir hendur. Keppnin var hnífjöfn en C liðið sigraði við mikinn fögnuð bekkjarins. Skólafélagar og starfsmenn tóku virkan þátt í hvatningunni í þessari ágætu keppni.