Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hrafnhildur og Erlen Anna sigra

24.03.2010
Hrafnhildur og Erlen Anna sigraStóra upplestrarkeppnin var haldið í gær í Félagsheimili Seltjarnarness.  11 keppendur frá Sjálandsskóla, Flataskóla, Hofstaðaskóla og Valhúsaskóla Seltjarnarnesi kepptu til úrslita í Stóru upplestrarkeppninni í Félagsheimili Seltjarnarness í gær.  Það voru nemendur Sjálandsskóla þær Hrafnhildur og Erlen Anna sem hrepptu fyrstu tvö sætin, Hrafnhildur í 1. sæti og Erlen Anna 2. sæti og óskum við þeim innilega til hamingju með það.  Þær stóðu sig vel og voru skólanum til sóma.  Skemmtiatriði voru frá öllum skólunum og frá  Sjálandsskóla var dansatriði með þeim Margréti Ýr, Margréti Jakobs og Lenu.              
Til baka
English
Hafðu samband