Frístundabíll Garðabæjar
Frístundabíll Garðabæjar vorið 2011
Ákveðið hefur verið að hefja rekstur „frístundabíls“ í Garðabæ nú á vorönn 2011. Stefnt er að því að hefja aksturinn mánudaginn 17. janúar og endurmeta verkefnið í lok þessa skólaárs.
Markmiðið með frístundabíl er að hægt verði að samþætta betur íþrótta- og tómstundastarf við skólastarfið og hafa það í einni samfellu. Jafnframt er markmiðið að nýta betur íþróttamannvirki Garðabæjar. Á þessari önn verða töflur íþrótta- og tómstundafélaga óbreyttar en ef tilraunarverkefnið gengur vel, er horft til þess að hægt verði að hefja íþrótta- og tómstundastarf fyrr á daginn næsta haust. Stefnt er að því að yngstu iðkendurnir verði búnir að stunda sitt íþrótta- og tómstundastarf þegar þeir eru sóttir í lok vinnudags. Tengt því er ætlunin að setja upp eina æfingatöflu sem gildir til næstu ára.
Akstursleiðin er ákaflega einföld og eingöngu stoppað á eftirtöldum stöðum: Hofsstaðaskóli (Mýrin), Tónlistarskóli Garðabæjar, Ásgarður og Sjálandsskóli (íþróttahús). Þessi leið verður ekin frá kl. 14:30 til 17:00 alla virka daga og er gert ráð fyrir einni ferð fram og til baka á hverjum 30 mín. Farið verður frá Mýrinni á heila og hálfa tímanum en á korterinu frá íþróttahúsinu Sjálandi.
Frístundabíllinn er hugsaður til þess að keyra börn frá skólunum (tómstundaheimilum) í íþrótta- og æskulýðsstarf og minnka þannig umferð einkabíla við skólana. Það á að vera nokkur fjárhagslegur sparnaður og hagræði í því fyrir foreldra að þurfa ekki að fara fyrr úr vinnu til þess að aka börnum í íþrótta- og tómstundarstarfið, en í dag hefst það um kl. 15 á daginn.
Að sjálfsögðu hvetur Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar til þess að þeir sem treysta sér til gangi til og frá skóla og í tómstundastarfið, þótt nauðsynlegt geti verið að aka yngstu iðkendum á þá staði þar sem starfið fer fram.
Kostnaður hvers þátttakanda er kr. 7.500,- fyrir önnina, óháð því hve mikið bíllinn er nýttur á tímabilinu. Það er því hagkvæmast að vera með frá byrjun. Akstur fyrstu vikuna er þó opinn öllum börnum endurgjaldslaust.
Skráning barna í frístundabílinn fer fram á „Mínum Garðabæ“. Aðgangskort verða gefin út og afhent á skrifstofum skólanna. Listi yfir þau börn sem eru áskrifendur að bílnum mun liggja frammi á tómstundaheimilunum svo starfsmenn geti aðstoðað börnin við að vera tilbúin á réttum tíma.
Það er á ábyrgð barnanna sjálfra að skila sér í frístundabílinn og að hafa aðgangskortin með sér til að sýna í bílnum.
Tímataflan er einföld.
Mýrin á heila og hálfa tímanum og hefst 14:30
Tónlistarskólinn fimm mínútur yfir ....
Ásgarður tíu mínútur yfir .....
Sjáland korter fyrir og yfir....
Bíllinn staldrar við í eina mínútu á hverjum stað.
Með von um gott samstarf,
Kári Jónsson, Íþróttafulltrúi Garðabæjar