Ítalskar pizzur og þýskar Bratwurst
Þessa dagana er 7. bekkur að vinna að þema um Evrópu sem eins og nafnið gefur til kynna landafræðiþema. Í þessu þema er farið yfir landfræðilega legu Evrópulanda, skiptingu álfunnar og helstu landslagseinkenni svæðanna. Þá læra nemendur um helstu stofnanir Evrópu, atvinnuvegi o.fl. Þar að auki er matreiðslu blandað inn í og kynna nemendur sér helstu þjóðarrétti Evrópulandanna. Í lokin mun hver og einn nemandi búa til heimasíðu um eitt Evrópuland og kynna fyrir bekkjarfélögum auk þess að bera saman í litlum hópum ólík lönd innan Evrópu. Á þriðjudaginn tóku nemendur þátt í ýmsum verkefnum sem tengjast Evrópu í útikennslu. Nemendur bökuðu ítalskar pizzur, grilluðu þýskar Bratwurst, kepptu í boðhlaupi og settu saman nöfn Evrópskra landa með stöfum og lærðu þar að auki að dansa gríska dansinn Zorba.