Heimsókn 10.bekkinga á Verk og vit
![Heimsókn 10.bekkinga á Verk og vit Heimsókn 10.bekkinga á Verk og vit](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2017-2018/10.bekkur/Verk-og-vit/a20180309_114323 (1280x720).jpg?proc=ContentImage)
Í dag, föstudaginn 9. mars, fóru nemendur í 10. bekk á sýninguna Verk og vit (www.verkogvit.is) í Laugardalshöllinni í boði Tækniskólans, skóla atvinnulífsins. Með þessu boði vill Tækniskólinn kynna nemendum þau tækifæri sem skólinn hefur upp á að bjóða og um leið atvinnumöguleika iðnaðarins.
Byrjað var á 10 mínútna kynningu þar sem fulltrúar skólans kynntu fjölbreytt námsval og félagslíf í Tækniskólanum. Að því loknu fengu nemendur að ganga um sýningarsvæðið og gátu kynnt sér fjölbreytta atvinnustarfsemi hinna ýmsu fyrirtækja í íslenskum byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð. Nemendur voru leystir út með hinum ýmsu gjöfum frá nokkrum fyrirtækjum á sýningunni og gátu gætt sér á gómsætis veitingum í leiðinni. Heimsóknin er liður í náms- og starfsfræðslu skólans og er vonandi að nemendur hafi haft gagn og gaman af.