Lopapeysur á bóndadegi
24.01.2020
Í dag er bóndadagur og þorrinn að hefjast. Í tilefni dagsins voru margir nemendur og starsfólk í lopapeysum að þjóðlegum sið.
Á myndasíðunni má sjá svipmyndir úr skólastarfinu í dag.
Þorri er nafnið á fjórða mánuði vetrar að gömlu íslensku misseratali. Hann hefst á föstudegi á bilinu 19.–26. janúar og lýkur á laugardegi áður en góa tekur við. Sá laugardagur er nefndur þorraþræll. Fyrsti dagur í þorra er kallaður bóndadagur og þekkist það nafn frá því á miðri 19. öld. Þann dag á húsmóðir að gera vel við bónda sinn í mat.
Þorrinn og góan þóttu erfiðastir vetrarmánaðanna þar sem oft var farið að ganga á matarbirgðirnar. Í söfnum Orðabókar Háskólans má finna þessi orðatiltæki:
- Hægt er að þeyja þorrann og góuna.
- Hægt er að þreyja þorrann og góuna og þá ber kýrin.
(af Vísindavefnum)
Upplýsingar um þorrann og bóndadaginn