Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Verðlaun veitt í Greindu betur

04.04.2024
Verðlaun veitt í Greindu betur

Verðlaunaafhending fór fram í gær í undankeppni Evrópsku tölfræðikeppninnar. Keppnin heitir Greindu betur og er á vegum Hagstofu Íslands. Verðlaunin veitti Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri.

Keppnin er þverfaglegt tilraunaverkefni sem ætlað er að veita unglingum á aldrinum 14 til 18 ára tækifæri til þess að efla hæfni sína í því að nýta upplýsingar á ábyrgan, skapandi og gagnrýninn hátt og getu sína til þess að taka upplýstar ákvarðanir.

Fyrsta sætið í yngri flokknum hlaut liðið Goðar frá Sjálandsskóla með verkefnið Tekjur á Íslandi. Í því liði voru Þorkell Gauti H Dungal, Matthías Þór Ólafsson og Róbert Kári Jónsson, nemendur í 10. bekk. Þeir hafa þar með tryggt sér þátttökurétt í Evrópsku tölfræðikeppninni.

Í öðru sæti var liðið Ernirnir einnig frá Sjálandsskóla með verkefnið Greining á ferðamennsku hér á landi. Í því liði voru Egill Dofri Agnarsson og Birkir Snær Ólafsson, einnig nemendur í 10. bekk.

Liðstjóri liðanna var Arngerður Jónsdóttir, náttúrufræðikennari unglingadeildar Sjálandsskóla.

Þetta er frábær árangur hjá þessum nemendum í unglingadeild Sjálandsskóla, að ná fyrsta og öðru sæti, sérstaklega þar sem þetta er keppni á landsvísu.  Þeir eru sér og skólanum til mikils sóma og erum við mjög stolt af þeim. Á heimasíðu skólans má sjá myndir frá kynningum verðlaunahafa.

 

Til baka
English
Hafðu samband