Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Morgunumferðin við Sjálandsskóla

09.10.2024
Morgunumferðin við Sjálandsskóla

Að gefnu tilefni viljum við ítreka að það á alls ekki að nota sleppistæði við hringtorgið sem bílastæði. Einnig viljum við beina þeim tilmælum til forráðafólks að beina umferð inn á bílastæðið með því að stækka hringinn (sjá skýringarmynd). Þannig náum við vonandi að draga úr því að öngþveiti myndist sem oft vill verða í og við hringtorgið.

Til baka
English
Hafðu samband