17.05.2011![Útieldun í 5. bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/5.-6.bekkur/utieldun-i-mai/P5120293.JPG?proc=AlbumMyndir)
Útieldun í 5. bekk
Í útikennslu 12. maí grillaði 5. bekkur í blíðskaparveðri.
Krakkarnir grilluðu ávexti með súkkulaði og kanilsykri og gæddu þeir sér svo á herlegheitunum með ís út á. Á myndasíðunni má sjá myndir frá eldamennskunni.
Nánar10.05.2011![Lög úr Skilaboðaskjóðunni](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/1.-2.bekkur/Skilabodaskjodan/P2168697.JPG?proc=AlbumMyndir)
Lög úr Skilaboðaskjóðunni
Nemendur í 1.-2. bekk hafa verið að æfa og sýna leikritið Skilaboðaskjóðan. Núna er Ólafur tónmenntakennari búin að taka lögin upp og eru þau komin á heimasíðuna. Hægt er að hlusta á þau undir verk nemenda.
Nánar04.05.2011![Skartgripagerð](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/List-og-verkgreinar/Skartgripagerd-val/P5020050.JPG?proc=AlbumMyndir)
Skartgripagerð
Nemendur á unglingastigi gátu valið sér nokkur valnámskeiðum í vetur. Eitt valnámskeiðið er skartgripagerð þar sem notast er við fjölbreytt efnisval, s.s. foam-leir, pappír o.fl. Á myndasíðunni má sjá sýnishorn af verkum nemenda í skartgripagerðinni...
Nánar04.05.2011![Vor í lofti](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/Almennt-ur-skolastarfinu/Vor_3.mai/P5030098.JPG?proc=AlbumMyndir)
Vor í lofti
Nú er sannarlega komið vor hjá okkur og nemendur Sjálandsskóla nutu veðurblíðunnar í útikennslu í gær. Á skólalóðinni mátti m.a. sjá nemendur í 7.bekk í útikennslu þar sem þeir voru í útileldun, hjuggu sprek í eldinn og bjuggu til girnilega rétti...
Nánar02.05.2011![Humania Nota - tónleikar](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/Almennt-ur-skolastarfinu/Tonleikar-29.apr/P4290033.JPG?proc=AlbumMyndir)
Humania Nota - tónleikar
Á föstudaginn kom hljómsveitin "Humania Nota" og flutti nokkur lög fyrir nemendur skólans. Í hljómsveitinni eru Héðinn Björnsson (kontrabassi), Cheick Ahmed Tidiane Bangoura (slagverk) og Marie Huby (píanaó). Þau fluttu lög frá ýmsum löndum, t.d...
Nánar28.04.2011![Kennaranemar í sundi](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/7.bekkur/Fatasund/PB257275.JPG?proc=AlbumMyndir)
Kennaranemar í sundi
Vikurnar 26. apríl – 13. maí verða íþróttakennaranemarnir Egill Björnsson og Óskar Örn Hauksson í verknámi í Sjálandsskóla.
Þeir fylgjast með kennslu og aðstoða fyrstu vikuna en seinni vikurnar tvær munu þeir saman eða í sitt hvoru lagi...
Nánar28.04.2011![1.bekkur fær hjálma](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/1.-2.bekkur/Hjalmar/P4270087.JPG?proc=AlbumMyndir)
1.bekkur fær hjálma
Í gær fengu börnin í 1. bekk afhenta hjálma frá Kiwanis og Eimskip. Hópurinn fór með rútu niður í Sundahöfn og voru með í ferðinni Helgi Grímsson skólastjóri, Gunnar Einarsson bæjarstóri og Margrét Björk Svavarsdóttir forstöðumaður færðslu og...
Nánar26.04.2011![Tilnefningar til foreldraverðlauna](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/HS_foreldraverdlaun_2011_915x133mm.jpg?proc=AlbumMyndir)
Tilnefningar til foreldraverðlauna
![Tilnefningar til foreldraverðlauna](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/HS_foreldraverdlaun_2011_915x133mm.jpg?proc=AlbumMyndir)
Heimili og skóli óska eftir tilnefningum til foreldraverðlauna. Í tilkynningu frá þeim segir:
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, verða afhent í 16. sinn við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 24. maí...
Nánar15.04.2011![Gleðilega páska !](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/paskaungar.JPG?proc=AlbumMyndir)
Gleðilega páska !
Í dag, föstudaginn 15.mars, er síðasti kennsludagur fyrir páskaleyfi. Kennsla hefst að nýju samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 26.apríl.
Starfsfólk Sjálandsskóla óskar nemendum og foreldrum gleðilegra páska.
Nánar15.04.2011![Ljótupeysudagur starfsfólks](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/Ymislegt/Ljotupeysudagur/P4150007.JPG?proc=AlbumMyndir)
Ljótupeysudagur starfsfólks
Í dag var starfsfólk Sjálandsskóla í misfallegum og skrautlegum peysum. Tilefnið var ljótupeysudagurinn þar sem keppt var um ljótustu peysuna.
Á myndasíðunni má sjá sýnishorn af þeim peysum sem starfsfólkið klæddist í dag.
Nánar13.04.2011![Diskó í kvöld (5.-7.bekkur)](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/5.-6.bekkur/Sjalandssk-got-talent/P3319695.JPG?proc=AlbumMyndir)
Diskó í kvöld (5.-7.bekkur)
Í kvöld, miðvikudag 13.apríl, er diskó í Sjálandsskóla fyrir 5.- 7. bekk kl.18-20. Pöntuð verður pizza og er sneiðin á 150 kr. Nemendur mega hafa með sér gos og sælgæti.
Nánar11.04.2011![Árshátíð unglingadeildar](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/Unglingastig/Arshatid/P4079944.JPG?proc=AlbumMyndir)
Árshátíð unglingadeildar
Unglingadeild Sjálandsskóla hélt árshátíð sína 7.apríl. Húsið opnaði kl.18 og hófst með fordrykk. Fljótlega byrjuðu skemmtiatriði frá nemendum og snæddur var hátíðarkvöldverður inn á milli atriða. Leynigesturinn Erpur mætti á svæðið og skemmtu...
Nánar- Fyrri síða
- 1
- ...
- 7
- 8
- 9
- ...
- 12