11.05.2012![Árshátið hjá 7.bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2011-2012/7.bekkur/arshatid/P5105492.JPG?proc=AlbumMyndir)
Árshátið hjá 7.bekk
Í gær héldu nemendur í 7.bekk árshátíð í skólanum. Nemendur elduðu sjálfir allan matinn, forrétt, aðalrétt og eftirrétt og sáu um öll skemmtiatriðin. Árshátíðin heppnaðist vel og allir skemmtu sér konunglega eins og sjá má á myndunum á myndasíðu...
Nánar07.05.2012![5. bekkur heimsækir KSÍ](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/sjalandsskoli-ksi.jpg?proc=AlbumMyndir)
5. bekkur heimsækir KSÍ
![5. bekkur heimsækir KSÍ](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/sjalandsskoli-ksi.jpg?proc=AlbumMyndir)
Í síðustu viku fór 5.bekkur í heimsókn í höfuðstöðvar Knattspyrnusambands Íslands. Mikill fótboltaáhugi er hjá nemendum í 5.bekk og margar upprennandi fólboltastjörnur í hópnum. Hjá KSÍ fengu nemendur fræðslu um starfsemi og aðstöðu KSÍ í Laugardal...
Nánar07.05.2012![Föt sem framlag](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/RKI_logo.jpg?proc=AlbumMyndir)
Föt sem framlag
![Föt sem framlag](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/RKI_logo.jpg?proc=AlbumMyndir)
Garðabæjardeild Rauða krossins hefur farið af stað með verkefni sem kallast Föt sem framlag - Hvíta Rússland. Sjálandsskóli ætlar að taka þátt í verkefninu og munu nemendur safna fötum og 7.bekkur sér svo um að flokka þau og merkja.
Nánar02.05.2012![Gyðjukvöld í Sjálandsskóla](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/Gydjukvold_mynd.bmp?proc=AlbumMyndir)
Gyðjukvöld í Sjálandsskóla
![Gyðjukvöld í Sjálandsskóla](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/Gydjukvold_mynd.bmp?proc=AlbumMyndir)
Á morgun fimmtudag verður haldið Gyðjukvöld Garðabæjar í Sjálandsskóla. Það eru kennarar skólans sem eru að safna fyrir námsferð til Kanada í vor sem standa fyrir skemmtikvöldinu. Á gyðjukvöld verður margt um að vera, skemmtiatriði, happdrætti...
Nánar02.05.2012![Tónlist frá 5.-6.bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/Music-icon.png?proc=AlbumMyndir)
Tónlist frá 5.-6.bekk
![Tónlist frá 5.-6.bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/Music-icon.png?proc=AlbumMyndir)
Undanfarið hefur 5. - 6. bekkur verið að æfa og taka upp lagið Heyja. Þau unnu með lagið í tengslum við nám um tónlist frumbyggja Norður-Ameríku. Í verkefninu var unnið með fjölröddun í söngnum og með fjölbreytt hljóðfæri í undirleik lagsins sem er...
Nánar25.04.2012![Listadagar -dagskrá á Garðatorgi](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2011-2012/Sameiginlegt/Listadagar-Gardatorgi/P4255078.JPG?proc=AlbumMyndir)
Listadagar -dagskrá á Garðatorgi
Í dag gengu allir nemendur í 1.-6.bekk í skrúðgöngu að Garðatorgi á Listadaga hátíð. Þar voru samankomin börn úr leikskólum og grunnskólum bæjarins. Lúðrasveit Garðabæjar spilaði nokkur lög og krakkarnir sungu með. Síðan kom Gói og tók lagið með...
Nánar24.04.2012![Slæmur hárdagur](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2011-2012/Sameiginlegt/Slaemur-hardagur/P4244986.JPG?proc=AlbumMyndir)
Slæmur hárdagur
Í dag er slæmur hárdagur hjá okkur í Sjálandsskóla. Þá koma allir ógreiddir eða með úfið hár. Það var gaman að sjá hversu fjölbreytt hárgreiðslan var hjá nemendum í morgunsöng í morgun eins og sjá má á myndasíðunni.
Nánar18.04.2012![Starfsdagur á föstudag og listadagar í næstu viku](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/Listadagar2012_vefborði_stór.JPG?proc=AlbumMyndir)
Starfsdagur á föstudag og listadagar í næstu viku
Föstudaginn 21.apríl er starfsdagur í Sjálandsskóla.
Listadagar verða haldnir í Garðabæ 19.-28.apríl. Við í Sjálandsskóla tökum að sjálfsögðu þátt í listadögum í næstu viku en síðustu daga hefur ýmislegt verið gert til að undirbúa listadagana. Á vef...
Nánar18.04.2012![Bláfjöll í dásamlegu veðri](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2011-2012/Sameiginlegt/Blafjoll/P4174837.JPG?proc=AlbumMyndir)
Bláfjöll í dásamlegu veðri
Í gær fóru nemendur og starfsfólk Sjálandsskóla í vel heppnaða ferð í Bláfjöll. Veðrið lék við okkur allan daginn og þrátt fyrir langa bið hjá sumum í skíðaleigunni þá nutum við dagsins í sól og blíðu. Flestir fóru á skíði eða snjóbretti en aðrir...
Nánar16.04.2012![Skíðaferð á morgun](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/Almennt-ur-skolastarfinu/Vetrarferd-Blafjoll/P2178875.JPG?proc=AlbumMyndir)
Skíðaferð á morgun
Á morgun, þriðjudag 17.apríl, verður farið í skíða- og vetrarferð í Bláfjöll. Nemendur eiga mæta stundvíslega kl.8.15 og rúturnar fara kl.8.30. Það er mjög mikilvægt að nemendur mæti á réttum tíma. Áætluð heimkoma er um kl.15.30.
Nánar12.04.2012![Undirbúningur listadaga](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2011-2012/1.-2.bekkur/Undirbuningur-listadaga/P4124747.JPG?proc=AlbumMyndir)
Undirbúningur listadaga
Undirbúningur listadaga, sem haldnir verða í Garðabæ 19.-29.apríl, er hafin hjá okkur í Sjálandsskóla. Í dag voru nemendur í 1.-2. bekk að búa til alls konar listaverk úr bókum, t.d. bókabíl, lampa og bókavörðu. Næstu daga verður haldið áfram að búa...
Nánar12.04.2012![7. bekkur á kajak](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2011-2012/7.bekkur/Kajak-12.april/P4124783.JPG?proc=AlbumMyndir)
7. bekkur á kajak
Það var líf og fjör í sundlauginni hjá 7.bekk í morgun þegar nemendur voru að æfa sig á kajak. Hrafnhildur sundkennari og Sígú kenndu þeim réttu tökin við að fara í og úr kajaknum, velta sér og að róa.
Nánar