Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

05.05.2014

Vorleikar- lista og hreyfistöðvar

Vorleikar- lista og hreyfistöðvar
Í dag og á morgun eru vorleikar hjá okkur í Sjálandsskóla. Þá er nemendum skólans skipt í aldursblandaða hópa og hóparnir fara á milli lista-og hreyfistöðva og leysa ýmis verkefni. Stöðvarnar eru bæði úti og inni og dæmi um stöðvar er kaplakubbar...
Nánar
02.05.2014

Íþróttakennaranemi

Íþróttakennaranemi
Næstu þrjár vikurnar verður kennaranemi hjá okkur í sundi og íþróttum sem heitir Mladen Tepavcevic. Hann kennir öllm nemendum sund en einungis 1. og 2. bekk íþróttir og unglingunum val. Hann er á öðru ári í íþróttafræði í Háskólanum í Reykjavík.
Nánar
02.05.2014

Skilaboðaskjóðan á listadögum

Skilaboðaskjóðan á listadögum
Í morgun komu nemendur í 1.bekk í Hofstaðaskóla og Flataskóla í heimsókn til að sjá leikritið um Skilaboðaskjóðuna sem 1.bekkurinn okkar sýndi. Sýningin var hluti af listadögum Garðabæjar og stóðu krakkarnir sig mjög vel.
Nánar
02.05.2014

Listadagar í Garðabæ

Listadagar í Garðabæ
Þessa vikuna eru listadagar í Garðabæ og að sjálfsögðu tökum við í Sjálandsskóla þátt í þeim. Undanfarnar vikur hafa allir nemendur unnið að einu sameiginlegu listaverki sem er til sýnis í skólanum. Verkið er heildstætt verkefni tengt þjóðsögunum og...
Nánar
30.04.2014

Hungurleikarnir -kynning frá Garðaskóla

Hungurleikarnir -kynning frá Garðaskóla
Í dag fengu nemendur í 5.-7.bekk að sjá tvö atriði úr sýningu Garðaskóla og Garðalundar um Hungurleikana. Sýningar eru haldnar næstu daga og má finna nánari upplýsingar um þær á heimasíðu Garðlundar
Nánar
30.04.2014

Myndir úr skíðaferð 5.-7.bekkjar

Myndir úr skíðaferð 5.-7.bekkjar
Í gær fór 5.-7.bekkur í skíðaferð í Bláfjöll. Veðrið var ágætt, skýjað og smá vindur, og svo birti til þegar leið á daginn. Krakkarnir stóðu sig mjög vel og fóru flestir á skíði eða bretti
Nánar
28.04.2014

Vor í lofti

Vor í lofti
Í dag voru nemendur í sumarskapi þegar sólin skein í hádegisfrímínútum. Eins og sjá má á myndunum taka nemendur vorinu fagnandi og var skólavöllurinn iðaði af lífi þegar ljósmyndari skólans fór út með myndavélina.
Nánar
28.04.2014

Skíðaferð 5.-7.bekkjar á morgun

Skíðaferð 5.-7.bekkjar á morgun
Á morgun þriðjudag 29.apríl fer 5.-7.bekkur í skíðaferð í Bláfjöll. Veðurspáin lítur vel út og vonandi lætur sólin sjá sig í fjöllunum. Nemendur mæta á venjulegum tíma kl.8:15 og haldið verður af stað með rútum kl.9:15 og komið til baka um þrjúleitið...
Nánar
11.04.2014

Gleðilega páska !

Gleðilega páska !
Í dag er síðasti kennsludagur fyrir páska en kennsla hefst aftur að loknu páskaleyfi þriðjudaginn 22.apríl. Starfsfólk Sjálandssskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar páskahátíðar.
Nánar
11.04.2014

Diskódagur í morgunsöng

Diskódagur í morgunsöng
Í dag var diskóþema hjá okkur í Sjálandsskóla og komu margir nemendur í diskóklæðnaði eins og sjá má á myndunum sem teknar voru í morgunsöng í morgun.
Nánar
09.04.2014

Páskaeggjabingó í dag !

Páskaeggjabingó í dag !
Í dag, miðvikudag, 9.apríl, verður foreldrafélag Sjálandsskóla með árlegt páskaeggjabingó. Húsið opnar kl. 17:30
Nánar
09.04.2014

Móðir mín í kví kví -tónlist frá 1.-2.bekk

Móðir mín í kví kví -tónlist frá 1.-2.bekk
Nemendur í 1. og 2. bekk hafa verið að vinna með mismunandi styrk í tónmennt. Í tengslum við það var krökkunum sögð þjóðsagan Móðir mín í kví kví og þeim kennt samnefnt þjóðlag. Krakkarnir völdu sér svo hljóðfæri til að leika á í laginu.
Nánar
English
Hafðu samband