03.12.2018![1.des.dagsskrá 8.bekkjar](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2018-2019/Allir/1.des.dagskra-8.bekkjar/aIMG_2215 (1280x853).jpg?proc=AlbumMyndir)
1.des.dagsskrá 8.bekkjar
![1.des.dagsskrá 8.bekkjar](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2018-2019/Allir/1.des.dagskra-8.bekkjar/aIMG_2215 (1280x853).jpg?proc=AlbumMyndir)
Í morgusöng var 8.bekkur með dagsskrá um 1.desember. Þau sögðu frá 1.desember, fullveldi Íslands og árinu 1918. Þá sungu allir nemendur saman lagið Öxar við ána og að lokum var kveikt á fyrsta aðventukertinu.
Nánar26.11.2018
Skipulagsdagur á morgun
Á morgun, þriðjudag 27.nóvember, er skipulagsdagur hjá okkur í Sjálandsskóla. Sælukot er opið fyrir þau börn sem þar eru skráð.
Nánar23.11.2018![Starfamessa í unglingadeild](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2018-2019/Allir/Starfamessa--unglingadeild--23.nov/IMG_2039 (1280x853).jpg?proc=AlbumMyndir)
Starfamessa í unglingadeild
![Starfamessa í unglingadeild](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2018-2019/Allir/Starfamessa--unglingadeild--23.nov/IMG_2039 (1280x853).jpg?proc=AlbumMyndir)
Í dag fór fram svokölluð Starfamessa fyrir nemendur unglingadeildar í sal skólans og er þetta í fyrsta sinn sem hún er haldin. Náms- og starfsráðgjafi skólans fékk foreldra, forráðamenn og aðra sjálfboðaliða til liðs með sér í að kynna störf sín og...
Nánar20.11.2018![Ævar vísindamaður í heimsókn](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2018-2019/Allir/aevar-visindamadur/IMG_2024 (1192x1280).jpg?proc=AlbumMyndir)
Ævar vísindamaður í heimsókn
![Ævar vísindamaður í heimsókn](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2018-2019/Allir/aevar-visindamadur/IMG_2024 (1192x1280).jpg?proc=AlbumMyndir)
Í morgun kom Ævar vísindamaður og las upp úr nýjustu bók sinni, Þitt eigið tímaferðalag. Nemendur hlustuðu af athygli en í bókum Ævars geta lesendur ákveðið framhald sögunnar með því að velja hvað kemur næst.
Nánar16.11.2018
Fræðslufundur fyrir foreldra unglingadeildar
Mánudaginn 19. nóvember boðum við foreldra nemenda 8.-10. bekkjar, til fræðslufundar. Fulltrúi frá samtökunum Blátt áfram mun fræða okkar um kynheilbrigði, ofbeldi, samskipti og mörk. Fyrirlesturinn er hluti af forvarnaráætlun skólans og tengist...
Nánar16.11.2018![Dagur íslenskrar tungu 16.nóv.](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2018-2019/Allir/Dagur-islenskrar-tungu-16.november/IMG_1989 (1024x485).jpg?proc=AlbumMyndir)
Dagur íslenskrar tungu 16.nóv.
![Dagur íslenskrar tungu 16.nóv.](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2018-2019/Allir/Dagur-islenskrar-tungu-16.november/IMG_1989 (1024x485).jpg?proc=AlbumMyndir)
Í dag, 16.nóvember, er dagur íslenskrar tungu. Í tilefni dagsins hafa nemendur verið að vinna ýmis verkefni tengd íslenskri tungu. Nemendur í unglingadeild fengu rithöfunda í heimsókn
Nánar15.11.2018
Gul veðurviðvörun
Skólunum hefur borist tilkynning frá slökkviliði varðandi gula viðvörun á morgun, föstudag. Veðrið mun ekki skerða skólastarf en við minnum foreldra á að klæða börnin vel.
Nánar14.11.2018![StopMotion kvikmyndagerð í 6.bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2018-2019/5.-og-6.bekkur/StopMotion--Blai-hnotturinn---6.b/IMG_1974 (1024x683).jpg?proc=AlbumMyndir)
StopMotion kvikmyndagerð í 6.bekk
![StopMotion kvikmyndagerð í 6.bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2018-2019/5.-og-6.bekkur/StopMotion--Blai-hnotturinn---6.b/IMG_1974 (1024x683).jpg?proc=AlbumMyndir)
Nemendur í 6.bekk eru um þessar mundir að lesa söguna um Bláa hnöttinn. Þeir búa til stopmotion kvikmynd í Ipad um söguna þar sem þeir nota Playmobil karla fyrir sögupersónur og sviðsmynd sem þeir hafa sjálfir búið til í list-og verkgreinum.
Nánar09.11.2018![Kræsingar á gleðidegi](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2018-2019/Allir/Gledidagur-9.nov/aIMG_1940 (1280x853).jpg?proc=AlbumMyndir)
Kræsingar á gleðidegi
![Kræsingar á gleðidegi](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2018-2019/Allir/Gledidagur-9.nov/aIMG_1940 (1280x853).jpg?proc=AlbumMyndir)
Vinavikan hjá okkur endaði með gleðidegi í dag þar sem nemendur komu með kræsingar á hlaðborð. Eins og sjá má á myndunum var mikið úrval á hlaðborðum og væntanlega fer enginn svangur heim úr skólanum í dag.
Nánar06.11.2018![Vinavika](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/vinir - Copy (2).jpg?proc=AlbumMyndir)
Vinavika
![Vinavika](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/vinir - Copy (2).jpg?proc=AlbumMyndir)
Þessa vikuna er vinavika hjá okkur í Sjálandsskóla. Þá vinna nemendur ýmis verkefni tengd vináttu. Vinaviku lýkur svo með gleðidegi á föstudaginn þar sem allir koma spariklæddir með góðgæti á hlaðborð.
Nánar24.10.2018![Starfsdagur og foreldraviðtöl](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/foreldrafundur.jpg?proc=AlbumMyndir)
Starfsdagur og foreldraviðtöl
![Starfsdagur og foreldraviðtöl](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/foreldrafundur.jpg?proc=AlbumMyndir)
Á föstudag (26.okt.) er sameiginlegur starfsdagur grunnskóla í Garðabæ og á mánudag (29.okt.) eru foreldra-og nemendaviðtöl í Sjálandsskóla. Sælukot er lokað á föstudeginum en opið á mánudeginum.
Nánar19.10.2018![Nýtt tímabil valgreina](/library/Images/Forsidumyndir/aIMG_7193 (1280x853).jpg?proc=AlbumMyndir)
Nýtt tímabil valgreina
![Nýtt tímabil valgreina](/library/Images/Forsidumyndir/aIMG_7193 (1280x853).jpg?proc=AlbumMyndir)
Á mánudaginn, 22.október, hefst nýtt tímabil valgeina í unglingadeild. Vetrinum er skipt í fjögur 8-9 vikna tímabil og tímabil 2 sem hefst núna stendur fram að jólum.
Nánar