11.10.2021
Þrauta-og leikjadagur -frestað
Þrauta-og leikjadagur sem vera átti á morgun, þriðjudag, fellur niður um óákveðin tíma vegna smits sem kom upp í skólanum.
Nánar05.10.2021
7.bekkur á Reykjum
Í gær fóru nemendur í 7.bekk í skólabúðirnar á Reykjum. Á hverju ári fara nemendur 7.bekkjar á Reyki og það er alltaf mikil tilhlökkun að komast á Reyki. Ferðin norður gekk vel og áttu nemendur frábæran dag
Nánar04.10.2021
6.bekkur á Vífilstaðavatni
Í síðustu viku fóru nemendur í 6. bekk í hjólaferð að Vífilsstaðavatni í hressandi veðri. Þar fengu þeir skemmtilega fræðslu frá Bjarna Jónssyni fiskifræðingi um lífríki vatnsins. Nemendur skemmtu sér mjög vel þrátt fyrir veðrið. Smápöddur úr vatninu...
Nánar01.10.2021
Skrímslalestur á bókasafni
Skrímslalestur stendur yfir allan októbermánuð á bókasafninu. Nemendur sem vilja taka þátt fá bókamerki sem gatað er í eftir hverja lesna bók. Eftir fimm lesnar bækur fá þau límmiða í verðlaun og eftir tíu fá þau viðurkenningarskjal.
Nánar29.09.2021
Myndataka í skólanum
Myndataka á vegum Skólamynda verður í dag, fimmtudag og föstudag. Teknar verða einstaklingsmyndir og hópmyndir af öllum árgöngum.
Nánar28.09.2021
Gul veðurviðvörun
Í dag, þriðjudag, er gul veðurviðvörun frá veðurstofunni. Viðvörunin gildir frá kl.13 og til miðnættis. Nánari upplýsingar má finna á vef Almannavarna og Veðurstofunnar
Nánar23.09.2021
Útikennsla í 1.bekk
Í hverri viku fara nemendur í 1.bekk í útikennslu í nágrenni skólans. Börnin læra að klæða sig eftir veðri og fara gjarnan með heitt kakó á brúsa með sér í útikennsluna. Á myndasíðunni eru komnar nýjar myndir af krökkunum í útikennslu í Gálgahrauni...
Nánar21.09.2021
Appelsínugul aðvörun
Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi í dag þriðjudag frá 13:30 – 17:00.
Nánar21.09.2021
Skýli í skógi
Krakkarnir í Sjálandsskóla eru öllu vanir þegar kemur að vondu veðri í útikennslu. Síðustu daga hafa nemendur í 4.og 5.bekk verið að æfa sig í að vera úti í vondu veðri og bjuggu til skýli í skóginum til að geta borðað nestið sitt úti
Nánar16.09.2021
Dagur íslenskrar náttúru- 8.b.
Nemendur í 8. bekk eru að læra um sveppi og fléttur í þemu. Í dag, á degi íslenskrar náttúru, skoðuðu þeir ýmsar tegundir af sveppum, sem þeir áttu að teikna, greina í viðeigandi hópa og skoða síðan í smásjá.
Nánar16.09.2021
Líffræði í 7.bekk
Nemendur í 7.bekk eru núna að vinna í þema um mannslíkamann. Þeir vinna fjölbreytt verkefni, bæði í bókum, verklega og í tölvum. Í dag voru nemendur að vinna með app og boli þar sem hægt er að sjá líffærin í þrívídd
Nánar15.09.2021
3.bekkur á Þjóðminjasafninu
Á þriðjudaginn fóru nemendur í 3.bekk í strætóferð á Þjóðminjasafnið á sýninguna Tíminn flýgur. Nemendur fengu leiðsögn gegnum safnið og sáu margt fróðlegt og skemmtilegt.
Nánar