05.10.2023![Alþjóðadagur kennara í dag](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/kennariclipart.jpg?proc=AlbumMyndir)
Alþjóðadagur kennara í dag
![Alþjóðadagur kennara í dag](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/kennariclipart.jpg?proc=AlbumMyndir)
Alþjóðadagur kennar er haldinn árlega þann 5.október til að minna á mikilvægi kennarastarfsins um allan heim. Dagurinn minnir okkur á mikilvægi menntunar og kennslu sem einn af grunnþáttum samfélagsins.
Nánar04.10.2023![Lokadagur átaksins](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2023-2024/Allir-nemendur/Lokadagur-Gongum-i-skolann/IMG_1329.JPG?proc=AlbumMyndir)
Lokadagur átaksins
Síðasti dagur átaksins "Göngum í skólann" var í dag og af því tilefni gengu nemendur og starfsfólk stóran hring um nágrenni skólans. Genginn var sami hringur og þegar átakið hófst en farinn öfugur hringur.
Nánar03.10.2023![Rafrásir í eðlisfræði](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2023-2024/8.-10.bekkur/Rafrasir-10.b/IMG_1319.JPG?proc=AlbumMyndir)
Rafrásir í eðlisfræði
Nemendur í 10.bekk hafa verið að læra um rafmagn og rafrásir undanfarið. Í dag voru þeir að lóða og búa til rafrásir í eðlisfræðitímanum.
Nánar02.10.2023![7.bekkur á Reyki](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2021-2022/7.bekkur/Reykir-skolabudir/aIMG_1420 (1024x768).jpg?proc=AlbumMyndir)
7.bekkur á Reyki
![7.bekkur á Reyki](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2021-2022/7.bekkur/Reykir-skolabudir/aIMG_1420 (1024x768).jpg?proc=AlbumMyndir)
Þessa vikuna eru nemendur í 7.bekk á skólabúðunum á Reykjum. Þar dvelja þau fram á föstudag og taka þátt í fjölbreyttu skólastarfi sem þar fer fram.
Nánar29.09.2023![Útikennsla í 2.bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2023-2024/2.bekkur/utikennsla-15.sept/PXL_20230915_110355284.MP.jpg?proc=AlbumMyndir)
Útikennsla í 2.bekk
![Útikennsla í 2.bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2023-2024/2.bekkur/utikennsla-15.sept/PXL_20230915_110355284.MP.jpg?proc=AlbumMyndir)
Nemendur í 2.bekk hafa brallað ýmislegt í útikennslu núna í haust. Á myndasíðu bekkjarins má sjá nokkrar myndir frá útikennslunni.
Nánar27.09.2023![Friðarhlaup](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2023-2024/3.bekkur/Fridarhlaup/IMG_1297.JPG?proc=AlbumMyndir)
Friðarhlaup
Nemendur í 3.bekk tóku í dag þátt í Friðarhlaupi Chinmoy. Fulltrúar félagsins komu með friðarkyndil og fengu nemendur að hlaupa með kyndilinn í íþróttasalnum.
Nánar12.09.2023![Twisted Forest í Heiðmörk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2023-2024/8.-10.bekkur/Heidmork-9.og-10.b/IMG_1041.JPG?proc=AlbumMyndir)
Twisted Forest í Heiðmörk
Nemendur í 9.og 10.bekk Sjálandsskóla tóku þátt í sýningunni Twisted Forest eftir danska leikhópinn Wunderland. Þessi sýning byggir á þátttöku nemenda í verkinu sem fór fram fyrir utan venjulega göngustíga í Heiðmörk
Nánar12.09.2023![Haustferð í Guðmundarlund](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2023-2024/Allir-nemendur/Gudmundarlundur/IMG_1186.JPG?proc=AlbumMyndir)
Haustferð í Guðmundarlund
Það var blíðskaparveður í Guðmundarlundi í dag þegar nemendur Sjálandsskóla fóru í árlega haustferð þangað. Krakkarnir fóru í leiki, nutu veðurblíðunnar og fengu svo grillaðar pylsur í hádeginu.
Nánar08.09.2023![Verkleg eðlisfræði í 10.bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2023-2024/8.-10.bekkur/Kraftur-bilakeppni-i-unglingadeild/IMG_1091.JPG?proc=AlbumMyndir)
Verkleg eðlisfræði í 10.bekk
Nemendur í 10. bekk hafa verið að vinna með krafta og hreyfingu í eðlisfræðitímum þessa vikuna. Þeir fengu það verkefni að hanna og gera bíl úr pappa sem átti ýmist að komast sem lengst eða hraðast eftir beinni braut.
Nánar05.09.2023![Göngum í skólann](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/gongumiskolann.png?proc=AlbumMyndir)
Göngum í skólann
![Göngum í skólann](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/gongumiskolann.png?proc=AlbumMyndir)
Sjálandskóli tekur þátt í verkefninu "Göngum í skólann" sem hefst á morgun, miðvikudaginn 6.september. Skóladagurinn hefst þá á sameiginlegri göngu um nágrenni skólans.
Nánar01.09.2023![Krakkar á kajak](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2023-2024/5.bekkur/Kajak-i-agust/IMG_1053.JPG?proc=AlbumMyndir)
Krakkar á kajak
Í góða veðrinu þessa fyrstu daga skólaársins fóru nemendur á miðstig út á kajak. Á hverju hausti fá allir nemendur í 5.-7.bekk tækifæri til að prófa kajak. Skólinn á nokkra kajaka sem eru mikið notaðir bæði á haustin og vorin, þegar veður leyfir.
Nánar25.08.2023![Við kennum-þið þjálfið](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/sumarlestu_mynd.JPG?proc=AlbumMyndir)
Við kennum-þið þjálfið
Fræðslufundur um lestrarkennslu verður haldinn fyrir foreldra og forráðamenn nemenda í 1.bekk, þriðjudaginn 29.ágúst kl.20:00
Nánar