30.05.2011![Hljóðfærakynning](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/Almennt-ur-skolastarfinu/Hljodfaerakynning/P5300611.JPG?proc=AlbumMyndir)
Hljóðfærakynning
Í morgun var Tónlistarskóli Garðabæjar með hljóðfærakynningu í morgunsöng. Þar voru kynnt nokkur blásturshljóðfæri, s.s. túba, trompet, básúna og horn. Nánari upplýsingar um starf tónlistarskólans má finna á heimsíðu skólans
Nánar30.05.2011![Kórinn með tónleika í dag kl.17](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/Almennt-ur-skolastarfinu/Jolaskemmtun/PC178061.JPG?proc=AlbumMyndir)
Kórinn með tónleika í dag kl.17
Í dag, mánudag 30.maí kl.17 er kór Sjálandsskóla með tónleika í sal skólans. Miðaverð er aðeins kr.300 og eru allir foreldrar, afar og ömmur, frænkur og frændur, hvattir til að koma og hlusta á þennan frábæra kór sem hefur verið að æfa í allan vetur...
Nánar27.05.2011![7. bekkur á kajak](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/7.bekkur/Kajak-mai/P5260554.JPG?proc=AlbumMyndir)
7. bekkur á kajak
Í dag og í gær hefur 7.bekkur verið að æfa sig á kajak. Fyrst voru gerðar nokkrar æfingar í sundlauginni þar sem Helgi skólastjóri kenndi þeim réttu tökin, meðal annars að velta bátunum. Síðan fóru krakkarnir á kajökum út á sjó þar sem siglt var frá...
Nánar27.05.2011![Fjör í morgunsöng](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/Almennt-ur-skolastarfinu/Morgunsong25mai/P5260532.JPG?proc=AlbumMyndir)
Fjör í morgunsöng
Í gær var mikið fjör í morgunsöng sem hófst með skemmtilegu leikriti sem leiklistarval 5.-6. bekkjar sýndi um samskipta stráka og stelpna í skólanum. Eftir leikritið kom bandarískur tónlistarmaður, Andy Mason, og skemmti nemendum í 1.-4. bekk með...
Nánar26.05.2011![Spilakvöld hjá 1.-2.bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/1.-2.bekkur/Spilakvold-25.mai/P5250089.JPG?proc=AlbumMyndir)
Spilakvöld hjá 1.-2.bekk
Miðvikudaginn 25.maí var spilakvöld hjá 1.og 2. bekk. Bekkjarfulltrúar skipulögðu kvöldið og komu foreldrar með eitthvað matarkyns sem sett var á sameiginlegt borð. Þegar allir höfðu fengið næringu kom starfsfólk frá fyrirtækinu Spilavinir með fullt...
Nánar26.05.2011![Gestir frá Evrópu](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/Comenius/Comenius-Sjalansskola/P5230475.JPG?proc=AlbumMyndir)
Gestir frá Evrópu
Dagana 18.-24. maí komu 15 kennarar frá fimm löndum í Evrópu í heimsókn í Sjálandsskóla. Ástæða heimsóknarinnar var Comenius verkefni sem Sjálandsskóli tekur þátt í. Gestirnir tóku þátt í kennslunni með því að elda mat frá þeirra heimalandi og kenna...
Nánar25.05.2011![Grímsvötn- tónverk frá 8.bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/grimsvotn.jpg?proc=AlbumMyndir)
Grímsvötn- tónverk frá 8.bekk
![Grímsvötn- tónverk frá 8.bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/grimsvotn.jpg?proc=AlbumMyndir)
Krakkarnir í 8. bekk voru að ljúka við tónverkið Grímsvötn sem túlkar eldgosið í tónum. Verkið er samið í anda Jóns Leifs þar sem fyrirbæri úr íslenskri náttúru er túlkað í tónlist. Verkið er í rondo formi þ.e. A-B-A-C-A. Það hefst á kyrrð jökulsins...
Nánar18.05.2011![Lög frá 5.-6. bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/MusicIcon.jpg?proc=AlbumMyndir)
Lög frá 5.-6. bekk
![Lög frá 5.-6. bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/MusicIcon.jpg?proc=AlbumMyndir)
Fyrir stuttu voru krakkarnir í 5. og 6. bekk í kristinfræði þema. Um svipað leiti höfðu þau verið að læra um reggae tónlist í tónmennt. Það lá því beinast við að sameina þetta tvennt og úr urðu þrjár reggae útgáfur af gömlum sálmum. Lögin má finna...
Nánar18.05.2011![Matadorkóngurinn hjá 3.-4.bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/3.-4.bekkur/Matadorkongurinn/P5180331.JPG?proc=AlbumMyndir)
Matadorkóngurinn hjá 3.-4.bekk
Í dag var leikritið Matadorkóngurinn flutt í morgunsöng. Það var 3.-4.bekkur sem sýndi okkur þetta skemmtilega leikrit sem þau hafa verið að æfa og undirbúa síðustu vikur. Skemmtilegt leikrit með frábærum búningum, hárkollum og sviðsmynd, sem...
Nánar17.05.2011![Lionshlaup 5. bekkjar](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/5.-6.bekkur/Lionshlaup-5.bekk/P5110187.JPG?proc=AlbumMyndir)
Lionshlaup 5. bekkjar
Lionshlaup var haldið 11. maí 2011. Nemendur 5. bekkja tóku þátt og var þetta boðhlaup á milli umsjónarhópanna þriggja.
Það voru félagar úr Lionsklúbbnum Eik í Garðabæ sem stóðu fyrir hlaupinu eins og undanfarin ár og spjölluðu þeir aðeins við...
Nánar17.05.2011![Útieldun í 5. bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/5.-6.bekkur/utieldun-i-mai/P5120293.JPG?proc=AlbumMyndir)
Útieldun í 5. bekk
Í útikennslu 12. maí grillaði 5. bekkur í blíðskaparveðri.
Krakkarnir grilluðu ávexti með súkkulaði og kanilsykri og gæddu þeir sér svo á herlegheitunum með ís út á. Á myndasíðunni má sjá myndir frá eldamennskunni.
Nánar10.05.2011![Lög úr Skilaboðaskjóðunni](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2010-2011/1.-2.bekkur/Skilabodaskjodan/P2168697.JPG?proc=AlbumMyndir)
Lög úr Skilaboðaskjóðunni
Nemendur í 1.-2. bekk hafa verið að æfa og sýna leikritið Skilaboðaskjóðan. Núna er Ólafur tónmenntakennari búin að taka lögin upp og eru þau komin á heimasíðuna. Hægt er að hlusta á þau undir verk nemenda.
Nánar- 1
- 2