27.02.2014![Vítiseldar úr iðrum jarðar](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2013-2014/5.-6.bekkur/Vitiseldar-ur-idrum-jardar/P2273705.JPG?proc=AlbumMyndir)
Vítiseldar úr iðrum jarðar
Núna er 5.-6.bekkur að vinna í þemanu "Vítiseldar úr iðrum jarðar", þar sem fjallað er um eldgos og jarðfræði Íslands. Í dag voru nemendur að rannsaka steina, þeir fóru út og fundu steina sem þeir skoðuðu svo í víðsjá
Nánar25.02.2014![Spennandi Comeniusarverkefni hjá 1.-4.bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/comenius_logo.jpg?proc=AlbumMyndir)
Spennandi Comeniusarverkefni hjá 1.-4.bekk
![Spennandi Comeniusarverkefni hjá 1.-4.bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/comenius_logo.jpg?proc=AlbumMyndir)
Í vetur hefur 1.-4.bekkur unnið að Comeniusarverkefni sem ber heitið "Once upon an Island" og er þetta tveggja ára samvinnuverkefni nokkurra Evrópulanda.
Nú er komið inn á heimasíðuna nánari upplýsingar, myndir og sögur af verkefninu.
Nánar24.02.2014![Velkomin eftir vetrarfrí](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2013-2014/1.-2.bekkur/utikennsla-gongutur-1.nov/IMG_1694.JPG?proc=AlbumMyndir)
Velkomin eftir vetrarfrí
Við bjóðum nemendur velkomna eftir vetrarfrí og vonum að allir hafi haft það gott í fríinu. Framundan hjá okkur eru sjö skemmtilegar vikur fram að páskum.
Í næstu viku er bolludagur, sprengidagur og öskudagur
Nánar14.02.2014![Skilaboðaskjóðan hjá 1.-2.bekk](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2013-2014/1.-2.bekkur/Skilabodaskjodan/P2143691.JPG?proc=AlbumMyndir)
Skilaboðaskjóðan hjá 1.-2.bekk
Í morgun fengum við að sjá sýninguna um Skilaboðaskjóðuna sem 1.-2.bekkur hefur verið að æfa undanfarið. Í gær var sýning fyrir foreldra og aðstandendur þar sem um 150 manns sáu sýninguna
Nánar14.02.2014![5.-6.bekkur í íshokký á Reykjavíkurtjörn](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2013-2014/5.-6.bekkur/ishokky-a-tjorninni-13.feb/Photo 13.2.2014 11 12 05.jpg?proc=AlbumMyndir)
5.-6.bekkur í íshokký á Reykjavíkurtjörn
![5.-6.bekkur í íshokký á Reykjavíkurtjörn](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2013-2014/5.-6.bekkur/ishokky-a-tjorninni-13.feb/Photo 13.2.2014 11 12 05.jpg?proc=AlbumMyndir)
5.-6 bekkur notaði útikennsluna sína í gær til að hreyfa sig í tengslum við Lífshlaupið. Farin var bæjarferð á Reykjavíkurtjörn og spilað hokkí á klakanum.
Nánar13.02.2014![Sitthvor sokkadagur og Zumba](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2013-2014/Almennt-ur-skolastarfinu/Sitthvor-sokkadagur-og-Zumba/aP2133638.JPG?proc=AlbumMyndir)
Sitthvor sokkadagur og Zumba
Í dag er sitthvor sokkadagur hjá okkur í Sjálandsskóla. Þá koma allir í sitthvorum sokknum og er dagurinn einn af tyllidögum skólans þarf sem brugðið er út af vananum með alls konar klæðnaði.
Nánar13.02.2014![3.-4.bekkur í Kramhúsinu](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2013-2014/3.-4.bekkur/Kramhusid/2014-02-10 11.07.47.jpg?proc=AlbumMyndir)
3.-4.bekkur í Kramhúsinu
![3.-4.bekkur í Kramhúsinu](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2013-2014/3.-4.bekkur/Kramhusid/2014-02-10 11.07.47.jpg?proc=AlbumMyndir)
Núna er 3.-4.bekkur að vinna í Afríkuþema og á mánudaginn fóru krakkarnir í Kramhúsið og lærðu Afríska dansa.
Á myndasíðunni má sjá myndir frá Kramhúsinu
Nánar10.02.2014![Konungur ljónanna](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2013-2014/Unglingastig-allir/Lion-King-leiksyning--feb.2014/P2103611.JPG?proc=AlbumMyndir)
Konungur ljónanna
Í morgun fengum við að sjá leiksýninguna um Konung ljónanna (Lion King) sem leiklistarhópur Klakans hefur verið að æfa undanfarnar vikur. Sýningin byggir á hinni frægu teiknimynd Lion King sem fjallar um Simba ljónsunga og ævintýri hans.
Nánar07.02.2014![Zumba í morgunsöng](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2013-2014/Almennt-ur-skolastarfinu/Zumba-i-morgunsong-7.feb/P2073566.JPG?proc=AlbumMyndir)
Zumba í morgunsöng
Lífshlaupið hófst hjá okkur í vikunni og af því tilefni fengum við Zumba-kennara frá Klifinu til að taka nokkra léttar æfingar í morgunsöng í dag. Eins og sjá má á myndunum tóku allir virkan þátt í dansinum og krakkarnir voru ánægðir með að byrja...
Nánar06.02.2014![1.-2.bekkur í Kópavogsdal](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2013-2014/1.-2.bekkur/utikennsla-Kopavogsdal/2014-01-31 10.57.02.jpg?proc=AlbumMyndir)
1.-2.bekkur í Kópavogsdal
![1.-2.bekkur í Kópavogsdal](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2013-2014/1.-2.bekkur/utikennsla-Kopavogsdal/2014-01-31 10.57.02.jpg?proc=AlbumMyndir)
Í síðustu viku fór 1.-2.bekkur í Kópavogsdal í útikennslunni. Þau tóku strætó og fóru með brauð til að gefa öndunum. Þann dag var ákvaflega fallegt veður, nýfallinn snjór yfir öllu, logn og blíða.
Nánar05.02.2014![Listasýning á foreldraviðtalsdegi](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/2013-2014/Almennt-ur-skolastarfinu/Listasyning-5.feb/P2053527.JPG?proc=AlbumMyndir)
Listasýning á foreldraviðtalsdegi
Í dag eru foreldra- og nemendaviðtöl og hafa listgreinakennarar settt upp glæsilega sýningu í tilefni dagsins. Þar má sjá ýmsa muni sem nemendur hafa búið til í myndmennt, textíl og smíði í vetur.
Nánar03.02.2014![Lion King hjá leikfélagi Klakans](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/lionking plaggat.jpg?proc=AlbumMyndir)
Lion King hjá leikfélagi Klakans
![Lion King hjá leikfélagi Klakans](/library/Images/Myndir-ur-skolastarfinu/Frettamyndir/lionking plaggat.jpg?proc=AlbumMyndir)
Leikfélag Klakans frumsýnir söngleikinn Lion King föstudaginn 7.febrúar í sal Sjálandsskóla.
Sýningar verða sem hér segir:
Nánar- 1
- 2