Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Íþróttadagur í Sjálandsskóla

06.05.2008
Íþróttadagur í SjálandsskólaÍ byrjun dags voru allir nemendur saman á ýmsum hreyfistöðvum. Í annarri og þriðju lotu var hópskipting.  Einn hópur fór á línuskautum að Hofsstaðaskóla. Hjólahópur eldri fór suður í Hafnarfjörð og upp í Áslandshverfi ásamt því að hjóla niður í miðbæ Hafnarfjarðar.  Yngri hjólahópurinn hjólaði í Kópavoginn.  Kajakhópurinn hjólaði upp að Vífilsstaðavatni þar sem kajakarnir biðu þeirra og þau spreyttu sig á vatninu sem var nokkuð úfið.  Þeirra beið heitt kakó á staðnum sem eitt foreldri kom með færandi hendi. Í lok dags var brennó og kýlómót.
Til baka
English
Hafðu samband