Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

16.06.2014

Sumarlokun skrifstofu

Sumarlokun skrifstofu
Skrifstofa Sjálandsskóla verður lokuð vegna sumarleyfa 23.júní-5.ágúst. Skrifstofan opnar aftur miðvikudaginn 6.ágúst Gleðilegt sumar !
Nánar
11.06.2014

Comeniusarverkefnið

Comeniusarverkefnið
Nemendur í 3.-4.bekk heimsóttu bókasöfn Garðabæjar og Hafnarfjarðar í tengslum við Comeniusarverkefni sem Sjálandsskóli er þátttakandi í. Eftir heimsóknina sömdu nemendur sögur
Nánar
11.06.2014

Rapp frá 5.-6.bekk

Rapp frá 5.-6.bekk
Í maí og byrjun júní lærðu nemendur 5. og 6. bekkjar um rapptónlist. Í kjölfarið sömdu þeir sín eigin rapplög ýmist við eigin texta eða þekkt íslensk ljóð.
Nánar
06.06.2014

Skólaslit -vitnisburður

Skólaslit -vitnisburður
Í dag voru skólaslit hjá 1.-8.bekk. Þá hittust allir í salnum þar sem kórinn flutti tvö lög og Helgi skólastjóri kvaddi nemendur og óskaði þeim alls góðs í sumar. Að því loknu fóru nemendur með umsjónarkennurum inn á sín heimasvæði þar sem
Nánar
05.06.2014

Vorferð 8.bekkjar-strákahópurinn

Vorferð 8.bekkjar-strákahópurinn
Strákarnir í 8. bekk fóru í sannkallaða ævintýravorferð. Ferðin hófst með klettaklifri í húsi Bjarkanna í Hafnarfirði. Síðan var hellirinn Leiðarendi kannaður frá toppi til táar
Nánar
05.06.2014

Vortónleikar kórsins

Vortónleikar kórsins
Í dag verða árlegir vortónleikar kórs Sjálandsskóla haldnir í sal skólans og hefjast kl.17.00 Allir velkomnir
Nánar
05.06.2014

Innilegan

Innilegan
Í nótt var hin árlega innilega og gistu tæplega 200 nemendur í 1.-7.bekk í skólanum. Krakkarnir fóru snemma í náttfötin og áttu góðan dag eftir fjallgönguna í gær. Leynigesturinn, sem var vinningshafi í Island got talent, mætti kl.5 og sýndi dans og...
Nánar
04.06.2014

Esjuganga

Esjuganga
Í dag fór 1.-7.bekkur í Esjugöngu í blíðskaparveðri. Ferðin gekk mjög vel og var hópnum skipt í 3 hópa sem fór miserfiðar gönguleiðir. Á myndasíðunni má sjá myndir úr Esjugöngunni
Nánar
03.06.2014

Útskrift 10.bekkjar

Útskrift 10.bekkjar
Á mánudag var útskrift 10.bekkjar haldin við hátíðlega athöfn í sal Sjálandsskóla. Að þessu sinni voru 29 nemendur útskrifaðir úr skólanum. Kennarar 10.bekkjar sýndu myndband um nemendur, Megasarbandið flutti tónlistaratriði
Nánar
02.06.2014

Góður árangur í Unicef-hlaupinu

Góður árangur í Unicef-hlaupinu
Eins og undanfarin ár tóku nemendur 1.-7.bekk í Sjálandsskóla þátt í Unicef-hlaupinu þar sem nemendur hlaupa og safna fyrir hvern kílómeter sem þeir hlaupa. Krakkarnir voru mjög duglegir að safna og hlaupa
Nánar
02.06.2014

Óskilamunir

Óskilamunir
Við viljum minna nemendur og foreldra á að kíkja á óskilamunina sem eru fyrir framan bókasafnið. Þar er búið að raða upp öllu sem hefur orðið eftir í vetur og má þar finna mikið magn af vettlingum, húfum, íþróttafötum, nestisboxum o.fl.o.fl.
Nánar
English
Hafðu samband