Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

29.10.2010

Hattadagur

Hattadagur
Í dag var hattadagur nemenda og starfsfólks í Sjálandsskóla. Þá komu allir með alls konar höfuðföt. Mörg furðuleg og fyndin höfuðföt voru út um allan skóla og greinilega mikið úrval af höfuðfötum til á heimili nemenda. Tilefnið var hrekkjarvaka sem...
Nánar
28.10.2010

Útikennsla hjá 5.-6.bekk

Útikennsla hjá 5.-6.bekk
Í dag voru nemendur í 5.-6.bekk í útikennslu. Þrjú verkefni voru í gangi, eitt var að baka brauð, eitt að spila kubbaspil og eitt að vinna að persónusköpun með persónur úr Snorra sögu.
Nánar
27.10.2010

Miki, fjöllistamaður frá Grænlandi

Miki, fjöllistamaður frá Grænlandi
Grænlenskur listamaður, Miki, heimsótti 5.-6.bekk í dag. Miki er ljósmyndari, myndlistarmaður og leikari. Hann sagði krökkunum frá lífinu í Grænlandi og sýndi þeim hvernig gerðar eru grænlenskar andlitsgrímur sem notaðar eru við grænlenskan...
Nánar
27.10.2010

Lög frá 7.bekk

Lög frá 7.bekk
7.bekkur er nýbúinn að taka upp tvö lög í tónmennt. Þau hafa verið að læra um jazz og sérstaklega um swing taktinn. Þau æfðu og tóku upp tvö lög þar sem swing takturinn er alls ráðandi. Annars vegar er það prúðuleikara lagið Mana mana og hinsvegar So...
Nánar
26.10.2010

Söngleikur frá Færeyjum

Söngleikur frá Færeyjum
Í dag fengu nemendur í 1.-4. bekk að horfa á og taka þátt í sýningu listamanna frá Færeyjum. Sýningin heitir Ævintýraferðin og er eftir Færeyingana Dánjal og Búa. Þeir hafa skrifað handrit og samið tónlist við mörg vinsæl barnaleikrit í Færeyjum. Í...
Nánar
25.10.2010

Íþróttadagur 1.-7.bekk

Íþróttadagur 1.-7.bekk
Á föstudaginn var íþróttadagur hjá 1.-7.bekk. Þá tóku nemendur þátt í alls konar íþróttum í íþróttahús og á útisvæði við skólann. Þrátt fyrir kulda og trekk þá skemmtu nemendur sér vel í fótbolta, körfubolta, kubb, brennó, snúsnú, borðtennis o.fl...
Nánar
21.10.2010

Comenius - Leeds í Englandi

Comenius - Leeds í Englandi
COMENIUS Fit for life – fit for Europe. Síðastliðið haust fékk Sjálandsskóli styrk frá menntaáætlun Evrópusambandsins til að vinna að Comeniusarverkefni í samstarfi við skóla í 5 öðrum löndum. Samstarfslöndin eru Bretland, Þýskaland...
Nánar
20.10.2010

Nýtt tímabil valgreina hefst á mánudaginn

Nýtt tímabil valgreina hefst á mánudaginn
Nýtt tímabil valgreina í unglingadeild hefst mánudaginn 25.október. Tímabilið stendur fram að jólum. Eftirfarandi valgreinar eru í boði: Málun, bakstur, glervinna, kemur sprenging?, líkamsmótun, boltagreinar, dýrafræði, franska, bakstur, rafmagnað...
Nánar
20.10.2010

Ball á föstudaginn í Sjálandsskóla

Ball á föstudaginn í Sjálandsskóla
Föstudaginn 22.október verður Garðalundur með geggjað festival, Garðabær City Fest 2010 í ballsal Sjálandsskóla. Húsið opnar kl.20. Þetta er samskólaball Garðaskóla, Sjálandsskóla og Álftanesskóla, fyrir nemendur í 8.-10.bekk. Miðinn kostar 700 kr. í...
Nánar
15.10.2010

Skipulagsdagur og foreldraviðtöl

Skipulagsdagur og foreldraviðtöl
Mánudaginn 18.október er skipulagsdagur og þriðjudag 19.október eru foreldraviðtöl. Þessa daga er engin kennsla.
Nánar
14.10.2010

Ræðupúlt úr rekavið frá Hólmavík

Ræðupúlt úr rekavið frá Hólmavík
Árni Már smíðakennari og Sigurður húsvörður smíðuðu ræðupúlt úr rekavið sem starfsfólk Grunnskólans á Hólmavík færði skólanum að gjöf. Starfsfólkið kom hingað fyrir stuttu í heimsókn til þess að læra af reynslu okkar í Sjálandsskóla. Nemendur 5...
Nánar
13.10.2010

Útiíþróttir hjá 1.-2. bekk

Útiíþróttir hjá 1.-2. bekk
Myndir frá útiíþróttum í 1. og 2. bekk eru komnar í myndasafnið. Þar má sjá nemendur stunda ýmsar íþróttagreinar á battavelli, á grasi hjá leikskólanum Sjálandi og niður í fjöru. Það sem hópar A og B gerðu m.a í tímunum var að fara í eltingaleik og...
Nánar
English
Hafðu samband