Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

30.11.2011

Rauður dagur á morgun

Rauður dagur á morgun
Á morgun, 1.desember, verður rauður dagur hjá okkur í Sjálandsskóla. Þá ætla allir að mæta í einhverju rauðu, rauðri peysu, rauðum buxum eða bara með rauða jólasveinahúfu. Á föstudaginn verður svo foreldrakaffi í morgunsöng.
Nánar
30.11.2011

9. bekkur heimsótti Lækjarskóla

9. bekkur heimsótti Lækjarskóla
Í tilefni af Nýbúaþemanu í 9. bekk fórum við í heimsókn í Lækjarskóla (móttökudeild) og hittum þar nemendur og kennara og fengum að skoða aðstæður. Nemendur voru búnir að undirbúa kynningu fyrir okkur á íslensku um starf móttökudeildarinnar sem var...
Nánar
28.11.2011

Jólaskreyttur skólinn

Jólaskreyttur skólinn
Í morgun var kveikt á fyrsta aðventukertinu okkar í morgunsöng í Sjálandsskóla. Þessa vikuna verður skólinn færður í jólabúning þar sem nemendur hengja upp jólaskraut og kveikt verður á jólaljósum víða um skólann. Í desember er alltaf nóg um að vera...
Nánar
25.11.2011

Slökkviliðið heimsótti 3.-4.bekk

Slökkviliðið heimsótti 3.-4.bekk
Í dag kom slökkviliðið að heimsækja 3.bekk og fræddi nemendur um eldvarnir og viðbrögð við eldsvoða. Nemendur fengu síðan að skoða bæði sjúkra- og slökkviliðsbílinn. Myndir frá heimsókninni má sjá á myndasíðu 3.-4.bekkjar
Nánar
25.11.2011

Lög frá 7.bekk

Lög frá 7.bekk
Nemendur í 7. bekk tóku nýlega upp lagið Manamana sem þekktast er í fluttningi prúðuleikaranna. Lagið var æft í tengslum við kennslu um swing taktinn og spuna æfingar. Nemendur völdu sér hljóðfæri sem þeir léku svo á í upptökunni en einnig eru tveir...
Nánar
25.11.2011

1.-2.bekkur í safnaferð

1.-2.bekkur í safnaferð
Í síðustu viku fóru krakkarnir í 1. Og 2.bekk í heimsókn á Hönnunarsafn Íslands og á Bókasafn Garðabæjar. Pamela De Sensi og Hjörtur Hjartarson tóku á móti krökkunum á Hönnunarsafninu og kenndu þeim að búa til margskonar hljóðfæri. Hljóðfærin verða...
Nánar
24.11.2011

Leiklistarhópur 5.-6.bekkjar

Leiklistarhópur 5.-6.bekkjar
Í morgun sýndi leiklistarhópur 5.-6.bekkjar leikrit um Óðinn og bræður hans. Þetta var annar hluti leikritsins, framhald af sýningu sem haldin var í október. Margrét Helgadóttir kennari í 5.-6.bekk hefur séð um leiklistarhópana í 5.-6.bekk og það er...
Nánar
23.11.2011

Munum eftir endurskinsmerkjum

Munum eftir endurskinsmerkjum
Nú í svartasta skammdeginu er mikilvægt að öryggisbúnaður nemenda sé í lagi. Við viljum minna foreldra á að fara yfir endurskinsmerki á yfirhöfnum og töskum barna ykkar. Þeir nemendur sem eru á hjóli verða að vera með ljós á hjólinu.
Nánar
22.11.2011

Hattadagur í Sjálandsskóla

Hattadagur í Sjálandsskóla
Í Sjálandsskóla er ýmislegt gert til að brjóta upp skólastarfið. Tyllidaganefnd sér um að skipuleggja hinar ýmsu uppákomur og í dag var svokallaður hattadagur. Þá komu nemendur og starfsfólk með alls konar hatta og höfuðföt sem settu svip sinn á...
Nánar
22.11.2011

3.-4. bekkur heimsækir Reykjanesbæ

3.-4. bekkur heimsækir Reykjanesbæ
Í gær gerðu nemendur í 3. - 4.bekk sér glaðan dag í útikennslu og fóru með kennurum sínum í rútu til Reykjanesbæjar. Tilgangur ferðarinnar var að heimsækja Víkingaheima en nemendur hafa verið að lesa bókina Litlu landnemarnir í haust. Í leiðinni...
Nánar
17.11.2011

Gleðidagur í lok vinaviku

Gleðidagur í lok vinaviku
Vinavikan í síðustu viku endaði á miklum gleðidegi á föstudeginum 11.nóvember. Þá voru tilkynnt úrslit í ljóða- og sögukeppninni og vinalagið var frumflutt í morgunsöng. Einnig voru tilkynnt úrslit í ljósmyndakeppninni sem haldin var í tilefni...
Nánar
17.11.2011

Þjóðlegt á degi íslenskrar tungu

Þjóðlegt á degi íslenskrar tungu
Í tilefni af Degi íslenskrar tungu í gær var bryddað uppá ýmsu þjóðlegu í Sjálandsskóla. Starfsfólk mætti með íslenskar skotthúfur og sumir mættu í þjóðbúning. Íslenskir höfundar lásu upp úr verkum sínum, Gunnar Helgason las úr bók sinni Víti í...
Nánar
English
Hafðu samband