Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Saga mannkyns hjá 3.-4. bekk

04.03.2011
Saga mannkyns hjá 3.-4. bekk

Í dag héldu nemendur í 3.-4. bekk kynningu á þemaverkefninu um sögu mannkyns sem þeir hafa verið að vinna með undanfarnar vikur. Í morgunsöng fluttu nemendur þrjú lög frá mismunandi heimshornum, m.a. frá Kína og Perú. Eftir sönginn var foreldrum boðið að horfa á kynningu þar sem sagt var frá sögu mannkyns frá fornöld til nútímans.

Á myndasíðu skólans má sjá myndir frá kynningunni og einnig myndir af tímaásnum sem krakkarnir bjuggu til og hangir upp á vegg við stiginn.

Til baka
English
Hafðu samband