Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

"Göngum í skólann"

04.09.2012
"Göngum í skólann"

Á morgun miðvikudag 5.september hefst átakið "Göngum í skólann". Sjálandsskóli er heilsueflandi skóli og leggur áherslu á að nemendur komi í skólann fyrir eigin vélarafli, gangandi eða hjólandi. Verkefnið er nú haldið í sjötta sinn hér á landi og lýkur formlega með alþjóðlega "Göngum í skólann" deginum miðvikudaginn 3.október. Sem fyrr verður lögð áhersla á að börn gangi eða hjóli til og frá skóla. Markmið verkefnisins eru að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.

Nánari upplýsingar má finna á http://www.gongumiskolann.is/

Til baka
English
Hafðu samband